03.11.26 - 23:47
Brynjar Ingi Erluson
„Svona verður Man Utd að spila“

Michael Carrick

Mynd: EPA

Cunha skorar sigurmarkið

Mynd: EPA

Wayne Rooney var ánægður með seinni hálfleikinn

Mynd: EPA

Michael Carrick

Mynd: EPA

Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, hrósaði fyrrum liðsfélaga sínum Michael Carrick í hástert eftir 3-2 sigur United á Roma í kvöld.

TENGT EFNI
Carrick: Ég er ekki með neina kristalkúlu
Rooney sagðist hafa séð allt annað andlit á Manchester United í síðari hálfleiknum gegn Roma.
United var 2-0 undir í hálfleik, en leikmenn liðsins mættu af allt öðrum krafti til leiks í þeim síðari, skoruðu þrjú mörk og sýndu að það væri enn líf í liðinu.
Rooney ræddi meðal annars viðtal Bruno Fernandes, fyrirliða United, eftir leikinn og þá ástríðu sem hann sýndi þegar hann svaraði gagnrýni undanfarinna vikna.
„Bruno Fernandes sýndi ákveðna ástríðu þegar hann varði sjálfan sig og það sem honum fannst rétt. En það sem skiptir mestu máli er að við sáum loksins þessa ástríðu og baráttu inni á vellinum, því fyrri hálfleikurinn var hræðilegur. Þetta voru tveir gjörólíkir hálfleikir.“
„Það vantaði alla ástríðu, tæklingar, baráttu um boltann og grimmd í fyrri hálfleiknum, en sá síðari var algjör andstæða.“
„Þegar liðið fór að spila svona í síðari hálfleiknum og maður sá stuðningsmennina taka við sér, þá hafði maður allan tímann á tilfinningunni að United myndi vinna leikinn,“ sagði Rooney.
Rooney telur að hálfleiksræða Michael Carrick hafi skipt sköpum. Hvað sem stjórinn sagði við leikmenn sína í leikhléinu hafi það greinilega skilað tilætluðum árangri.
„Michael Carrick á mikið hrós skilið. Ef maður setur sig í hans spor getur maður rétt ímyndað sér hvað hann hefur verið að hugsa um hvernig hægt væri að snúa þessu við. Hvað sem hann sagði við leikmennina í hálfleik, þá breytti það öllu. Hann kom þeim í gang og gaf þeim trúna á að þeir gætu unnið leikinn.“
„Maður fann að þeir gætu unnið þetta, því allir voru saman í þessu.“
Næsti leikur United er gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni um helgina og segir Rooney mikilvægt að leikmennirnir byggi á frammistöðunni í síðari hálfleiknum gegn Roma og mæti af sama krafti til leiks.
„Maður vonar það svo sannarlega. Þeir verða að halda í þessa tilfinningu úr síðari hálfleiknum, því mér fannst allt breytast, bæði inni á vellinum og í stúkunni. Svona verður Manchester United að spila.“
„Þeir verða að ráðast á leikina og taka þetta hugarfar með sér inn í leikinn gegn Aston Villa. Ef þeir verða jafn passífir og í fyrri hálfleiknum gegn Roma munu þeir tapa þeim leik. Þeir verða að halda áfram á þessari braut,“ sagði Rooney.