04.11.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Vildi ekki tala um fótbolta - „Skelkaður og leiður“

Raphinha

Mynd: EPA

Raphinha

Mynd: EPA

Brasilíski sóknarmaðurinn Raphinha var sleginn og sorgmæddur þrátt fyrir að hafa skorað tvö mörk í 3-0 sigri Barcelona á Aston Villa í Meistaradeildinni í gær.

TENGT EFNI
Leikmaður lést eftir að hafa farið í hjartastopp í leik á Spáni
Raphinha átti stóran þátt í sigri Barcelona og hjálpaði liðinu að stíga enn eitt skrefið í átt að sæti í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.
Brasilíumaðurinn heldur áfram að gera stórkostlega hluti inni á vellinum, en þegar CBS ræddi við hann eftir leikinn hafði hann lítinn áhuga á að tala um fótbolta.
Hugur hans var hjá fjölskyldu Jesus de Miguel, sem lést langt fyrir aldur fram eftir að hafa farið í hjartastopp í kjölfar harkalegs samstuðs við markvörð Andorra.
„Fyrirgefið mér, en í kvöld vil ég ekki tala um fótbolta. Ég vil tileinka stuðningsmönnum okkar sigurinn, en mig langar líka að senda fjölskyldu Jesus de Miguel mikinn styrk.“
„Megi hann hvíla í friði. Þetta getur komið fyrir hvern sem er og sannleikurinn er sá að þetta er ótrúlega erfitt. Þegar ég sá fréttirnar í morgun vakti það upp margar erfiðar tilfinningar. Ég er gríðarlega sleginn og sorgmæddur.“
„Svo fer maður sjálfur út á völlinn og spilar leikinn, vitandi að það sama gæti komið fyrir mann sjálfan. Ég og félagið viljum senda fjölskyldu hans allan okkar styrk,“ sagði Raphinha.