03.11.26 - 21:06
Brynjar Ingi Erluson
PSG setti ótrúlegt met

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Evrópumeistarar Paris Saint-Germain settu met í fyrri hálfleik gegn Villarreal í Meistaradeildinni í kvöld.
PSG hefur leikið á als oddi gegn Villarreal í Meistaradeildinni í kvöld, en liðið komst í 4-0 forystu á rúmum sextán mínútum.
Joao Neves opnaði markareikninginn á 9. mínútu og aðeins þremur mínútum síðar tvöfaldaði Desire Doue forystuna.
Senny Mayulu bætti við þriðja markinu áður en Fabian Ruiz skoraði það fjórða þegar rúmar sextán mínútur voru liðnar af leiknum.
Ruiz fagnaði markinu með því að benda til himins og tileinkaði það Jesus De Miguel, sem lést í morgun eftir að hafa farið í hjartastopp í leik Tenerife og Andorra.
Með þessum fjórum mörkum setti PSG nýtt met í Meistaradeildinni, en ekkert lið hefur áður skorað fjögur mörk jafn snemma í leik í keppninni.
PSG sló þar með met Real Madrid frá árinu 2011, þegar spænska stórliðið skoraði fjögur mörk á fyrstu tuttugu mínútunum gegn Dinamo Zagreb.

16:02 - Le Paris Saint-Germain vient d'établir le record de l'équipe la plus rapide à inscrire quatre buts en Ligue des Champions (16 minutes et 2 secondes).
— OptaJean (@OptaJean) November 3, 2026
Survol. https://t.co/9XDC7SHs7B