Fotbolti.net
04.11.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Kemur markverðinum til varnar - „Myndi aldrei vilja meiða nokkurn mann“

Jesus Owono

Jesus Owono

Canon

Mynd: EPA

Lautaro Spatz, leikmaður Andorra FC á Spáni, hefur komið liðsfélaga sínum Jesus Owono til varnar í tilfinningaþrungnum skilaboðum sem hann birti á samfélagsmiðlum í gær.
Lokar samfélagsmiðlum sínum eftir að hafa verið úthrópaður morðingi
TENGT EFNI

Lokar samfélagsmiðlum sínum eftir að hafa verið úthrópaður morðingi

Varnarmaðurinn sendi fjölskyldu Jesus de Miguel, framherja Tenerife, sínar dýpstu samúðarkveðjur eftir að leikmaðurinn lést í kjölfar harkalegs samstuðs í leik liðanna.

Owono, markvörður Andorra, hljóp langt út úr marki sínu, nánast að miðlínu, þar sem hann lenti harkalega á De Miguel. Framherjinn fór í hjartastopp í kjölfarið og lést á sjúkrahúsi morguninn eftir.

Owono hefur síðan orðið fyrir gríðarlegu áreiti á samfélagsmiðlum og fengið fjölda hatursskilaboða. Áreitið varð svo mikið að hann neyddist til að eyða reikningum sínum á samfélagsmiðlum.

Spatz hefur nú komið liðsfélaga sínum til varnar og segir engan þjást meira en hann um þessar mundir.

„Það koma augnablik þar sem fótboltinn skiptir engu máli. Augnablik sem fylgja manni alla ævi og minna mann á hversu brothætt lífið getur verið. Það sem við upplifðum er eitthvað sem ekkert okkar mun nokkurn tímann gleyma. Þetta var harmleikur sem braut okkur niður, gerði okkur orðlaus og fyllti okkur sorg sem erfitt er að lýsa.“

„Fyrst og fremst vil ég senda mínar dýpstu samúðarkveðjur og alla mína ást til fjölskyldu, vina og ástvina Jesus, sem og stuðningsmanna Tenerife og allra innan fótboltans.“

„Allur leikmannahópur Andorra hefur verið í áfalli síðan í gær. Við erum allir niðurbrotnir og það sem gerðist hefur haft djúpstæð áhrif á okkur. Þetta er harmleikur sem ekkert okkar hefði nokkurn tímann ímyndað sér að upplifa inni á fótboltavellinum.“

„Mig langar líka að segja nokkur orð um liðsfélaga minn, markvörðinn okkar og vin minn, sem þetta hefur haft gríðarleg áhrif á. Við sem þekkjum hann vitum hvers konar manneskja hann er og hversu mikið hann þjáist núna. Hann myndi aldrei vilja meiða nokkurn mann.“

„Í fótbolta koma stundum upp ófyrirséðar aðstæður, en enginn getur ímyndað sér að eitt slíkt augnablik geti haft svona skelfilegar afleiðingar,“
sagði Spatz.
Jesus De Miguel lést í gær

Jesus De Miguel lést í gær

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.