Fotbolti.net
04.11.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Arteta um peysutogið á Anfield: Ég er með risastórt safn af klippum

Mikel Arteta

Mikel Arteta

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, virðist eiga heilt safn af myndskeiðum af ýmsum atvikum á fótboltavellinum og vísaði hann í nýjasta safnið sitt þegar hann var spurður út í umdeilt atvik í leik liðsins gegn Liverpool um helgina.
Iraola: Synd að við þurfum að segja leikmönnum að dýfa sér
TENGT EFNI

Iraola: Synd að við þurfum að segja leikmönnum að dýfa sér

Spánverjinn var spurður út í peysutog Jurrien Timber á Alexander Isak inni í vítateignum í fyrri hálfleiknum.

Liverpool taldi að dómarateymið hefði brugðist með því að dæma ekki vítaspyrnu, enda hefði Timber rænt Isak upplögðu marktækifæri með því að toga hann niður þegar hann ætlaði að skalla boltann.

Arteta sat fyrir svörum á fréttamannafundi fyrir leik Arsenal gegn Slavía Prag þegar atvikið bar á góma og enn á ný vísaði hann í stórt klippusafn sem hann hefur tekið saman.

Á dögunum sagðist hann eiga safn af myndskeiðum þar sem aðrir stjórar yfirgefa tæknisvæðið sitt án þess að fá refsingu, en sjálfur fékk hann gult spjald fyrir slíkt og telur að ekki sé alltaf sama regla látin gilda um alla.

Nú virðist hann einnig vera kominn með myndarlegt safn af peysutogum og öðrum sambærilegum atvikum.

„Já, ég á fullt af myndskeiðum af peysutogum og atvikum þar sem leikmenn grípa í hver annan. Ég er með risastórt safn sem við getum alveg rætt.“

„Við erum að tala um eitt ákveðið atvik hér, en ég er með gríðarlegt safn sem við getum líka tekið inn í umræðuna til að minna alla á hvað hvert einasta lið þarf að ganga í gegnum,“
sagði Arteta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.