Fotbolti.net
03.11.26 - 20:43
Brynjar Ingi Erluson

Fenerbahce komið með nýjan þjálfara fyrir Liverpool-leikinn

Emre Belozoglu

Emre Belozoglu

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Tyrkneska félagið Fenerbahce tilkynnti í kvöld að Emre Belozoglu hefði verið ráðinn nýr þjálfari liðsins.
 Kuyt stýrir gegn Liverpool
TENGT EFNI

Kuyt stýrir gegn Liverpool

Ismail Kartal sagði starfi sínu lausu í síðustu viku eftir slæma byrjun liðsins á tímabilinu.

Dirk Kuyt tók tímabundið við liðinu og stóð til að hann myndi stýra því gegn Liverpool í Meistaradeildinni á morgun, en nú hefur félagið ráðið nýjan þjálfara.

Fyrir valinu varð Belozoglu, fyrrum landsliðsmaður Tyrklands og leikmaður Fenerbahce, en félagið kynnti ráðningu hans í kvöld. Hann ætlar sér að stýra liðinu gegn Liverpool á morgun.

Belozoglu átti glæsilegan feril sem fótboltamaður áður en hann lagði skóna á hilluna árið 2020. Hann tók síðan tímabundið við þjálfun Fenerbahce árið 2021.

Undanfarið hefur hann þjálfað Andra Fannar Baldursson og félaga hans hjá Kasimpasa, en er nú snúinn aftur til Fenerbahce.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.