Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 05. janúar 2021 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Getafe og Celta úr leik gegn C-deildarliðum
Leikmenn Íbísa trúðu varla eigin augum eftir þriðja markið.
Leikmenn Íbísa trúðu varla eigin augum eftir þriðja markið.
Mynd: Getty Images
Getafe og Celta Vigo eru bæði úr leik í spænska Konungsbikarnum eftir óvænt töp á útivelli gegn C-deildarliðum Cordoba og Ibiza.

Getafe heimsótti Cordoba og tapaði. Willy Ledesma gerði eina markið snemma leiks og gerðu heimamenn í Cordoba frábærlega að halda forystunni til enda.

Ledesma skoraði úr einu marktilraun Cordoba sem hæfði rammann en Getafe var vaðandi í færum án þess þó að finna netið.

Celta Vigo steinlá þá á partýeyjunni Íbísa. UD Ibiza komst í þriggja marka forystu fyrir leikhlé og vann að lokum 5-2 stórsigur í opnum og skemmtilegum leik.

Cordoba 1 - 0 Getafe
1-0 Willy Ledesma ('6 )

UD Ibiza 5 - 2 Celta
1-0 Sergio Castel ('12 )
2-0 Sergio Castel ('27 )
3-0 Mateo Javier Perez ('28 )
4-0 Manuel Molina ('61 , víti)
4-1 Santi Mina ('79 )
4-2 Jordan Holsgrove ('87 )
5-2 Angel Rodado ('90 )
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner