Róbert átti öflugt tímabil með Þrótti sem féll úr Lengjudeildinni á síðasta tímabili og spilar í 2. deild í sumar. Róbert er uppalinn í Stjörnunni en skipti svo yfir í Þrótt sumarið 2018. Sumarið 2019 lék hann sína fyrstu keppnisleiki í meistaraflokki.
Í vetur hefur hann verið orðaður við t.a.m. Fram. Síðasta sumar skoraði hann sex mörk í tuttugu leikjum og var að mörgum talinn besti leikmaður Þróttar á liðnu tímabili. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Í vetur hefur hann verið orðaður við t.a.m. Fram. Síðasta sumar skoraði hann sex mörk í tuttugu leikjum og var að mörgum talinn besti leikmaður Þróttar á liðnu tímabili. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Róbert Hauksson
Gælunafn: Oftast kallaður Robbi
Aldur: 20
Hjúskaparstaða: Föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: Sumarið 2018
Uppáhalds drykkur: Pepsi Max
Uppáhalds matsölustaður: Verð að gefa mínum mönnum á Mandi þetta
Hvernig bíl áttu: Hyundai I30
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Mikið fyrir klassíkina, Breaking Bad og Game Of Thrones
Uppáhalds tónlistarmaður: Er mikið að rokka á milli en heilt yfir verður það að vera Drake
Uppáhalds hlaðvarp: Blökastið, ein mesta veisla sem ég hef hlustað á
Fyndnasti Íslendingurinn: Erfitt val á milli Hjörvar Hafliða og Pétur Jóhanns en gef Hjöbba þetta
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Kæri Heilsuveru notandi ný gögn hafa borist til þín
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Best að halda öllum möguleikum opnum.
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Kári Árnason, ekkert eðlilega þreytt að reyna að fara fram hjá þeim gæja.
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Margir góðir koma til greina en Davíð Snorri stendur upp úr þegar hann var með yngri flokkana
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Spilaði á móti frænda mínum Kolbeini Þórðarsyni í yngri flokkum og hann var mikið að klípa og stíga á litla frænda í hornum og öðru slíku
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Torres og Suarez mjög ofarlega á lista, get varla gert upp á milli.
Sætasti sigurinn: Þegar við tókum Selfoss 0-3 í seinni leiknum í fyrrasumar.
Mestu vonbrigðin: Að falla úr Lengjudeildinni í fyrra
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Væri frekar sterkt að hafa Hannes Halldórs í markinu sínu.
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Hugsa að Kristian Hlynsson verði frekar öflugur
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Guðmundur Axel Hilmarsson
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Erfitt að segja til um það
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Er einn af þeim fáu sem gera sér grein fyrir því að Ronaldo og Messi eru jafn góðir
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Ósanngjarnt að henda einhverjum undir rútuna hér
Uppáhalds staður á Íslandi: Keflavíkurflugvöllur
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Kom inn á á 60 mínútu á móti Þór Akureyri á undirbúningstímabilinu 2020 skoraði eftir 5 mín og fékk síðan beint rautt 5 mín eftir það.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Læt það alveg eiga sig
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Horfi aðeins á körfubolta líka
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Phantom
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Hef aldrei lent í eins miklu rugli og þegar ég skráði mig í Heimspeki áfanga í menntó og það endaði með ósköpum
Vandræðalegasta augnablik: Rauða spjaldið eftir ég kom inn á móti Þór
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju og af hverju: Tæki Gumma Axel, Lárus Björnsson og Daða Bergs held að við myndum bara njóta þess að vera í sólinni.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Tala fína ítölsku
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Daði Bergs, vissi ekki að maður gæti verið svona grillaður.
Hverju laugstu síðast: Sagði held ég við konuna að Emily In Paris væru góðir þættir
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Er ekki sérlega hrifinn af varnarfærlsum
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Klopp afhverju Origi fær ekki meiri spilatíma
Athugasemdir