Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   fös 05. febrúar 2021 23:56
Brynjar Ingi Erluson
Dean Martin: Þetta er tuska í andlitið
Dean Martin
Dean Martin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dean Martin, þjálfari Selfyssinga, var svekktur eftir að hafa tapað úrslitaleik B-deildar Fótbolta.net mótsins í kvöld.

Þróttur V. vann leikinn 6-2 en Selfyssingar misstu tvo menn af velli í leiknum.

Jökull Hermannsson fékk rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks er hann braut af sér innan teigs og svo var Elfar Ísak Halldórsson rekinn af velli þegar lítið var eftir af leiknum.

„Þetta er svekkjandi fyrir strákana að tapa úrslitaleik. Þú getur kallað það hvað sem er þetta er leikur og við viljum ekki tapa," sagði Dean Martin við Fótbolta.net.

„Þetta er kannski ósanngjarnt stundum en þetta var sanngjarnt rautt spjald og víti. Þetta eru bara reglur og við verðum að fara eftir þeim."

„Þetta er tuska í andlitið. Núna þurfum við bara að koma okkur í gang aftur. Við erum búnir að styrkja liðið en þeir voru ekki að spila í kvöld."

„Við spiluðum fínan fótbolta á köflum í kvöld og er ánægður með það en ég er ekki ánægður með að fá sex mörk á okkur,"
sagði hann í lokin.
Slapp
banner
banner