Schalke 04 0 - 0 Mainz
Schalke gerði markalaust jafntefli gegn Mainz í þýsku deildinni í kvöld en liðið hefur ekki unnið leik síðan í byrjun janúar.
Schalke hefur aðeins unnið einn leik á tímabilinu og kom sá sigur gegn Hoffenheim í byrjun árs.
Liðið gerði í kvöld markalaust jafntefli Mainz og er áfram á botninum með 10 stig og útlit fyrir að liðið sé á leið í B-deildina.
Mainz er á meðan í 16. sæti deildarinnar með 18 stig.
Athugasemdir