Fotbolti.net
13.09.26 - 16:55
Haraldur Örn Haraldsson

Birkir Valur: Leið alltaf eins og markið væri að koma okkar megin

Auglýsing
Birkir Valur: Leið alltaf eins og markið væri að koma okkar megin
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Alveg frábært, þetta var ekki fallegasti leikurinn en við gerðum það sem þurfti til," sagði Birkir Valur Jónsson leikmaður FH eftir 3-0 sigur gegn KA í dag.

Lestu um leikinn: FH 3 - 0 KA

„Þetta voru erfiðar aðstæður, mikill vindur og völlurinn svolítið þurr. En við kláruðum þetta og það er fyrir öllu," sagði Birkir.

Leikurinn var í raun mjög jafn, en FH skoraði sín mörk á meðan KA var fyrirmunað að klára sín færi.

„Þeir fengu alveg sín færi, en mér leið alltaf ágætlega í þessum leik. Mér fannst við alltaf vera hættulegir þegar við komumst í skyndisókn, þó svo að kannski þeir hafi fengið sín færi í fyrri hálfleik, þá leið mér alltaf eins og markið væri að koma okkar megin. Á móti vindinum, svo í seinni hálfleik náum við í tvö mörk, og náum að loka þessu," sagði Birkir.

Úrslitin féllu vel með FH í dag, þar sem Þór og ÍBV tapaði. Þeir eru þá komnir fjórum stigum frá fallsæti.

„Við náttúrulega töpum þessum síðasta leik fyrir skiptingu sem gerði þetta aðeins erfitt fyrir okkur. Það kom okkur almennilega aftur inn í pakkann en nú náum við að rífa okkur frá þessu. Eins fljótt og þetta gerðist í dag, þá getur þetta fljótt farið í hina áttina ef við förum eitthvað að slaka á, þannig við verðum bara að halda áfram," sagði Birkir.

Það hefur mikið verið rætt um hvernig FH-ingar hafa snúið genginu við. Þeir náðu aðeins í sex stig í fyrstu ellefu leikjunum, en hafa nú tekið 18 stig í síðustu tólf leikjum. 

„Það var engin töfralausn, við bara unnum vel á æfingasvæðinu og kannski löguðum aðeins varnarleikinn. Við vorum að fá allt of mikið af mörkum á okkur framan af móti. Við löguðum það aðeins, og erum búnir að vera byggja ofan á það. Við erum búnir að fá á okkur fá mörk núna þegar líður á mótið og það er auðvelt að ná í úrslit þannig," sagði Birkir.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.