13.09.26 - 16:47
Brynjar Ingi Erluson
Rekinn af velli fyrir að sparka í magann á Fernandes - „Fannst þetta ekki vera rautt spjald“

Bruno Fernandes liggur eftir magaspark Foden

Mynd: EPA

Phil Foden, leikmaður Manchester City, fékk rautt spjald í fyrri hálfleik í grannaslagnum gegn Manchester United á Old Trafford í dag, en sérfræðingar telja dóminn afar umdeildan.
Atvikið átti sér stað á 23. mínútu þar sem Phil Foden og Bruno Fernandes voru að berjast. Foden féll í grasið og virtist sá portúgalski sparka í Foden sem brást við með að setja fótinn í maga Fernandes.
Michael Oliver, dómari leiksins, var ekki í neinum vafa og sýndi Foden rauða spjaldið en Fernandes slapp.
„Fernandes fer í hann. Ég er ekki hlynntur viðbrögðum Foden, en það var Fernandes sem byrjaði þetta,“ sagði Micah Richards á Sky.
Roy Keane, fyrrum leikmaður Man Utd, segir þetta aldrei hafa verið rautt spjald.
„Foden bregst við og það skrítna við þetta er að Fernandes sparkar í hann. Það er hann sem er árásargjarn í þessu atviki.“
„En svona í alvörunni talað fannst mér þetta ekki vera rautt á Foden,“ sagði Keane.
Hér fyrir neðan má sjá tvær myndir af þessu atviki.

????????| Replay shows Bruno Fernandes kicked Phil Foden first, before Foden reacted and was shown a red card! ???? pic.twitter.com/v7T5iiPc04
— CentreGoals. (@centregoals) September 13, 2026