Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. apríl 2021 06:00
Aksentije Milisic
Leicester leikur í efstu deild á næsta tímabili
Mynd: Getty Images
Leicester City hefur tryggt sér sæti í efstu deild á næsta tímabili í kvennaboltanum.

Þetta er í fyrsta skiptið í sögunni sem liðið mun taka þátt í efstu deild en þetta varð ljóst eftir 2-0 sigur liðsins gegn London City.

Mörk frá Sam Tierney og Natasha Jane Flint sáu til þess að sætið sé gulltryggt þegar enn eru tveir leikir eftir.

Liverpool var talið sigurstranglegast í þessari deild en liðið situr hins vegar í fjórða sæti deildarinnar, tólf stigum frá toppnum.

„Þetta hefur verið löng vegferð fyrir mig, ég man í byrjun var ég ekki einu sinni með leikmannahóp. Ég var með tólf leikmenn, að sjá það byggjast upp í þetta er frábært," sagði Jonathan Morgan, stjóri liðsins, áður en það var hellt kampavín yfir hann.

Athugasemdir
banner