15.09.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Félögin verði sjálf að setja fótinn niður svo undanþágum verði hætt

Miðgarður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spilað var í Akraneshöllinni í lokaumferð Bestu deildarinnar í fyrra og í upphafi móts í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Birgir Jóhannsson er framkvæmdastjóri ÍTF.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðgarður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það hefur talsvert verið rætt og ritað um þá staðreynd að karla- og kvennalið Stjörnunnar spiluðu hvort um sig tvo af heimaleikjum sínum í Bestu deildinni inni í fjölnotaíþróttahúsinu Miðgarði í Garðabæ á síðustu vikum.
Spilað var þar inni þar sem verið var að skipta um gervigras á Samsung velinum, heimavelli Stjörnunnar. Þeirri framkvæmd er lokið og því ætti ekki að þurfa að spila aftur í Miðgarði á þessu tímabili.
KSÍ veitti Stjörnunni undanþágu til að spila leikina sína þar inni. Ljóst er að umgjörð og upplifun áhorfenda á leikjunum er allt önnur en venjan er á leikjum í Bestu deildinni. Sjónvarpsútsendingar voru sem dæmi ekki jafn góðar og venjan er í Bestu deildinni.
Fótbolti.net ræddi við Birgi Jóhannsson, framkvæmdastjóra ÍTF, um leiki innanhúss í efstu deild.

TENGT EFNI
„Eins og að horfa á æfingaleik í gegnum Spiideo myndavél“
„Það hefur ekki verið sérstaklega rætt um þessa fjóra leiki Stjörnunnar um daginn, en þessi umræða var tekin á síðasta aðalfundi ÍTF. Þar var lögð fram spurningakönnun til formanna félaganna hvort að menn vilji halda áfram á þeirri línu að KSÍ geti veitt undanþágu varðandi leikstað. Niðurstaðan úr þeirri könnun var 6-6, það var ekki meirihluti fyrir því að banna þessar undanþágur," segir Biggi.
„Mín persónulega skoðun er að þetta er mjög lélegt, mér finnst þetta ekki deildinni til framdráttar. En á sama tíma skil ég alveg ákveðin sjónarmið og kannski sérstaklega á landsbyggðinni. Ef það kemur eitthvað svona upp á Akureyri þá er næsti löglegi völlur í Bestu deildinni á höfuðborgarsvæðinu. Að því sögðu þá gerði Vestri það á sínum tíma, spiluðu heimaleikina sína hjá Þrótti framan af tímabili."
„Ég veit að í komandi viðræðum við sjónvarpsrétthafa og fleiri, þá verður þetta skýrari krafa af þeirra hálfu."
„Við viljum alltaf að ásýndin sé eins flott og möguleg er, en svo koma upp svona tilvik þar sem verður að fara í framkvæmdir á undirlaginu. Einhvers staðar verður að spila, en ég vil að félögin þurfi að leita allra leiða til að spila á viðurkenndum völlum í efstu deild upp á ásýnd deildarinnar að gera."
„Það hafa verið gefnar undanþágur og það er erfitt að fara gegn undanþágum. Stjarnan hefði getað bent á Þór, ÍA, FH og fleiri dæmi. Á einhverjum tímapunkti þurfa félögin sjálf að stíga niður og segjast ekki ætla að gefa möguleika á undanþágum. Þá verður hægt að hætta því. Ég myndi segja að það sé næsta skref í þessu," segir Biggi.