Fotbolti.net
05.05.26 - 10:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Albert Brynjar: Sætið er sjóðandi heitt

Jökull Elísabetarson.

Jökull Elísabetarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stjarnan tapaði sínum þriðja leik í röð á sunnudag þegar Skagamenn komu í heimsókn á Samsungvöllinn í Garðabæ. Stjarnan er með sex stig eftir fimm umferðir og hefur fengið á sig a.m.k. tvö mörk í öllum leikjum deildarinnar.

Albert Brynjar Ingason er sérfræðingur í Stúkunni á SÝN Sport og hann segir að sætið hjá Jökli Elísabetarsyni, þjálfara Stjörnunnar, sé sjóðandi heitt.
„Ég var smá sjokkeraður hvað þeir voru betri"
TENGT EFNI

„Ég var smá sjokkeraður hvað þeir voru betri"

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 2 ÍA
Albert gagnrýndi varnarleikinn - þriggja manna varnarlínu Stjörnunnar - og sagði að Skagamenn hefðu verið mikla betra liðið á vellinum.

„Árni (Snær Ólafsson) er búinn að vera skrítinn í upphafi tímabils á að vera búinn að taka fleiri skot í markinu og ef þú ætlar að vera ofarlega á vellinum þá verður þú líka að vinna boltann ofarlega á vellinum, en þeir eru ekki að gera það. Það er lítil ákefð, manni finnst eins og Jökull sé að reyna fara svipaða leið og Óskar (með KR), en munurinn hvernig Stjörnuliðið vinnur án bolta er svakalegur."

„Það er búið að kaupa mikið í þetta lið, þetta er dýrt lið. Það er búið að kaupa leikmenn síðustu ár og fengu (Gustav) Kjeldsen og Birni Snæ í vetur. Jökull sagði fyrir úrslitakeppnina í fyrra að liðið ætlaði sér að vinna titilinn, svo eru leikmenn sóttir fyrir þetta tímabil og áfram talað um það (titilinn). En svo núna finnst mér eins og það sé verið að núllstilla þetta og fara í tilraunastarfsemi."

„Ég er ekki svo viss um að Jökull sé með þá inneign hjá stuðningsmönnum Stjörnunnar að hann hafi efni á því að fara taka einhverja sénsa. Þetta var ekki gott (gegn ÍA). Þetta eru þrír tapleikir í röð, liðið búið að fá á sig tvö mörk eða meira í öllum leikjum á þessu tímabili. Þetta eru tveir sigrar í síðustu tíu leikjum ef farið er til baka til síðasta tímabils. Er sæti heitt hjá Jökli? Það er sjóðandi heitt, alveg klárlega,"
sagði Albert Brynjar í þættinum.

Hann sagði einnig að Sindri Þór Ingimarsson væri ekki nógu góður til að vera einn í því að verja hjartað ef liðið ætlar sér að stefna á titilinn. Þá vakti það einnig athygli hans að Guðmundur Kristjánsson kláraði ekki leikina, heldur færi af velli eftir rúmlega 70 mínútna leik.

„Ég er ekki alveg viss um að þetta leikkerfi henti liðinu endilega best. Það sem þú stendur fyrir þarf ekki að snúast um kerfi. Mér líður eins og það séu of margir sem kannski séu að spila stöður í 3-4-3 sem nær ekki því besta út úr þeim," sagði Halldór Árnason í þættinum.

Framundan hjá Stjörnunni eru tveir leikir gegn toppliði KR: deildarleikur á föstudag og svo bikarleikur í næstu viku.
Albert Brynjar.

Albert Brynjar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.12+3534
2KR12+1528
3Fram11+523
4Breiðablik11+919
5Valur12-416
6ÍA11-515
7Keflavík11-712
8Stjarnan12-511
9ÍBV11-511
10KA11-610
11Þór11-197
12FH11-136
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.