Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 05. júní 2020 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Khedira háður því að vinna titla
Sami Khedira vill vinna Meistaradeildina með Juventus
Sami Khedira vill vinna Meistaradeildina með Juventus
Mynd: Getty Images
Sami Khedira, miðjumaður Juventus á Ítalíu, segist vera háður því að vinna bikara en hann vonast til að bæta við safnið í lok tímabilsins.

Khedira er 33 ára gamall og hefur unnið allt sem hægt er að vinna með félagsliði. Hann var partur af sigursælu liði Real Madrid frá 2010 til 2015.

Hann fór þaðan til Juventus og hefur unnið deildina fjórum sinnum og ítalska bikarinn einu sinni. Hann er orðinn háður því að lyfta bikurum.

„Ég hef unnið nánast allt og þetta er eins eiturlyf. Ef ég vinn ekki titil í eitt ár þá mun maður reyna að vinna allt næsta árið," sagði Khedira á Instagram.

„Draumurinn er að vinna Meistaradeildina með Juventus. Það tókst næstum því fyrir þremur eða fjórum árum síðar. Það munaði litlu gegn Real Madrid. Ég held að við getum unnið þessa keppni á næstu árum. Þetta er ekki bara draumur minn heldur draumur hjá öllum stuðningsmönnum Juventus," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner