Nú stendur yfir æfing Íslands á hinum sögufræga Hampden Park, þjóðarleikvangi Skotlands. Annað kvöld mætast Skotland og Ísland á vellinum í vináttulandsleik.
Fótbolti.net fylgdist með æfingum liðanna í dag en skoska liðið æfði á heimavelli Queens Park sem er við hlið Hampden. Meðal leikmanna í skoska hópnum eru Andy Robertson Englandsmeistari með Liverpool og Ítalíumeistararnir Scott McTominay og Billy Gilmour sem leika fyrir Napoli. Þeir tóku allir fullan þátt í æfingu skoska liðsins.

Allir leikmenn íslenska hópsins voru svo með á æfingunni á Hampden Park. Allavega þær fimmtán mínútur sem fjölmiðlamenn fengu að fylgjast með.
Tveir íslenskir fjölmiðlar eru á svæðinu, auk Fótbolta.net er Valur Páll Eiríksson mættur fyrir hönd Stöðvar 2 og Vísis.
Sex sinnum hafa Skotland og Ísland mæst á fótboltavellinum í A-landsliðum karla. Skotar hafa unnið alla sex leikina gegn íslenska liðinu, síðast árið 2009.
Undirritaður var þá einmitt á Hampden Park og sá Indriða Sigurðsson skora mark Íslands í 2-1 tapi. Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Íslands og Jóhann Berg Guðmundsson var ónotaður varamaður en þeir eru báðir í hópnum núna. Hér má sjá skýrsluna úr leiknum.
Á eftir munu Arnar Gunnlaugsson og Hákon Arnar Haraldsson sitja fyrir svörum á fréttamannafundi Íslands. Hákon er fyrirliði liðsins í þessum glugga þar sem Orri Steinn Óskarsson er ekki með vegna meiðsla.
Athugasemdir