Fotbolti.net
05.06.25 - 11:32
Elvar Geir Magnússon

Margir í skoska hópnum að koma úr öflugu tímabili

Scott McTominay átti frábært tímabil með Napoli. Hann varð Ítalíumeistari og hitti páfann.

Scott McTominay átti frábært tímabil með Napoli. Hann varð Ítalíumeistari og hitti páfann.

Canon

Mynd: EPA

Lengjan
Annað kvöld, klukkan 18:45 að íslenskum tíma, mun íslenska landsliðið leika vináttulandsleik gegn Skotlandi á Hampden Park í Glasgow.

Það er mikil spenna fyrir skoska liðinu hér í Skotlandi enda margir leikmenn að koma í þetta verkefni eftir öflug tímabil með sínum félagsliðum.

Meðal leikmanna í skoska hópnum eru Andy Robertson Englandsmeistari með Liverpool og Ítalíumeistararnir Scott McTominay og Billy Gilmour sem leika fyrir Napoli.

Lewis Ferguson fagnaði ítölskum bikarmeistaratitli sem fyrirliði Bologna og bakvörðurinn Max Johnston varð austurrískur meistari með Sturm Graz og áfram mætti telja.
Allir með á æfingu Íslands á Hampden Park
TENGT EFNI

Allir með á æfingu Íslands á Hampden Park

„Það er ótrúlegt að sjá hversu marga bikara, í mörgum löndum, leikmenn í hópnum hafa unnið. Það er magnað að sjá svo marga skoska leikmenn standa sig svona vel erlendis. Það er mjög hvetjandi fyrir okkur að leikmenn séu farnir að vinna titla og lyfta bikurum. Sem fótboltamaður viltu vera sigurvegari," segir Johnston við heimasíðu skoska fótboltasambandsins.

„Það var mjög ánægjulegt fyrir mig að vinna deildina í Austurríki. Það var gott tímabil og mér finnst ég hafa bætt mig mikið sem leikmaður. Mér finnst ég hafa verið að læra og bæta mig í hverri viku. Ég hef fengið smá forsmekk af því að spila fyrir Skotland og það hefur bara gert mig hungraðan í meira."
McTominay í landsleik með Skotlandi.

McTominay í landsleik með Skotlandi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.