31.08.26 - 09:10
Fótbolti.net
Lið og leikmaður 21. umferðar - Til hamingju Mosó!

Kristinn Freyr fagnar í Mosó.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Aron Snær Ingason er leikmaður umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Már er þjálfari umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árni Elvar kvaddi með góðri frammistöðu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Theodór Ingi Óskarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Freyr fagnar í Mosó.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Afturelding tryggði sér sæti í Bestu deildinni að nýju með 2-0 sigri gegn Vestra í 21. umferð Lengjudeildarinnar. Það er ljóst hvaða fjögur lið fara í umspilið en í lokaumferðinni mun ráðast hverjir mæta hverjum.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Aron Snær Ingason - Þróttur
Aron var frábær í 7-2 sigri Þróttar gegn Ægis. Hann lék á als oddi og varnarmenn Ægis réðu ekkert við hann. Aron lagði upp fyrsta mark leiksins og skoraði svo þrjú. Hann hefur átta sinnum verið í liði umferðarinnar í sumar. Þróttarar eru aftur á leið í umspilið.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Aron Snær Ingason - Þróttur
Aron var frábær í 7-2 sigri Þróttar gegn Ægis. Hann lék á als oddi og varnarmenn Ægis réðu ekkert við hann. Aron lagði upp fyrsta mark leiksins og skoraði svo þrjú. Hann hefur átta sinnum verið í liði umferðarinnar í sumar. Þróttarar eru aftur á leið í umspilið.

TENGT EFNI
Skoraði þrennu í kvöld og er eftirsóttur af félögum í Bestu

Magnús Már Einarsson er þjálfari umferðarinnar eftir að hafa tryggt Aftureldingu upp í deild þeirra bestu á ný. Mosfellingar eiga þrjá leikmenn í liði umferðarinnar; það eru Aron Elí Sævarsson, Kristinn Freyr Sigurðsson og markvörðurinn Arnar Daði Jóhannesson.
Fylkir fer í umspilið en liðið sigraði Gróttu 3-1. Theodór Ingi Óskarsson var með tvær stoðsendingar og er í liði umferðarinnar líkt og Bjarki Steinsen Arnarsson.
Hinn 16 ára Mikael Máni Þorfinnsson skoraði gríðarlega mikilvægt sigurmark Grindavíkur 4-3 gegn HK í uppbótartíma. Grindavík er þó enn í fallhættu en HK fer í umspilið.
Njarðvíkingar fara einnig í umspilið en þeir áttu mjög dapran dag í Breiðholti og töpuðu 2-0 gegn Leikni. Axel Freyr Harðarson var frábær í leiknum og gulltryggði sigur Leiknis. Árni Elvar Árnason var þá hrikalega öflugur á miðjunni í sínum síðasta leik.
Völsungur heldur vonum sínum á lífi og vann 3-1 gegn ÍR á Húsavík. ÍR-ingar eru í fallhættu fyrir lokaumferð. Elvar Baldvinsson var gríðarlega öflugur í vörn Völsungs og skoraði í leiknum. Arnar Pálmi Kristjánsson er einnig í liði umferðarinnar.
Fyrri úrvalslið:
20. umferð - Ólafur Örn Ásgeirsson - HK
19. umferð - Bergvin Fannar Helgason - ÍR
18. umferð - Valdimar Jóhannsson - Njarðvík
17. umferð - Birnir Breki Burknason - Leiknir
16. umferð - Aron Snær Ingason - Þróttur
15. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
14. umferð - Birkir Eyþórsson - Fylkir
13. umferð - Óðinn Bjarkason - Afturelding
12. umferð - Andri Freyr Jónasson - Grótta
11. umferð - Birkir Már Sævarsson - Afturelding
10. umferð - Edson - Vestri
9. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
8. umferð - Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR

Aron Snær Ingason er leikmaður umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Már er þjálfari umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árni Elvar kvaddi með góðri frammistöðu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Theodór Ingi Óskarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

TENGT EFNI
Árni Elvar eftir síðasta leikinn á ferlinum: Þetta er ein stór fjölskylda

TENGT EFNI
Magnús Már hefði skrifað handritið svona en: Við viljum meira, það er annar bikar í boði

TENGT EFNI
Sævarssynir upp í Bestu: Fínt að fá brósa í Mosó til að klára þetta - Þetta var planið frá að ég kom hingað
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | Fram | 21 | +14 | 44 |
| 3 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 4 | Breiðablik | 20 | +5 | 30 |
| 5 | Keflavík | 21 | -4 | 28 |
| 6 | ÍA | 21 | -4 | 27 |
| 7 | Valur | 21 | -7 | 24 |
| 8 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 9 | FH | 21 | -11 | 21 |
| 10 | Þór | 21 | -29 | 18 |
| 11 | ÍBV | 21 | -13 | 17 |
| 12 | KA | 21 | -14 | 17 |
