Fotbolti.net
31.08.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Paredes tjáir sig um tíu leikja bannið

Paredes tjáir sig um tíu leikja bannið
Canon

Mynd: EPA

Argentíski landsliðsmaðurinn Leandro Paredes hefur tjáð sig eftir að hafa verið dæmdur í tíu leikja bann fyrir slagsmál í úrslitaleik á HM í sumar þar sem Spánn lagði Argentínu.

Paredes kom inn á sem varamaður í hálfleik og var fljótur að næla sér í gult spjald. Þegar flautað var til leiksloka voru Argentínumenn reiðir og Paredes réðst á Eric Garcia og Gavi.
Paredes í tíu leikja bann eftir áflogin í úrslitaleiknum
TENGT EFNI

Paredes í tíu leikja bann eftir áflogin í úrslitaleiknum

Paredes vonast til að refsingin verði milduð.

„Þetta virðist ýkt. Það undarlega er líka að Gavi fékk eins leiks bann, sem er sá sem gefur mér hnefahöggið í bringuna. Nú þurfum við að áfrýja refsingunni. Fyrir mér er þetta óhóflegt og ég held að það sé hægt að draga úr þessu,“ sagði Paredes.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.