31.08.26 - 09:41
Elvar Geir Magnússon
Stóru málin rétt áður en glugginn lokast

Julian Alvarez vill helst fara til Barcelona en Arsenal reynir að krækja í hann.

Mynd: EPA

Enzo Fernandez gæti verið keyptur til Man City.

Mynd: EPA

Gakpo gæti farið frá Liverpool til Man City.

Mynd: EPA

Ismaila Sarr er orðaður við Liverpool.

Glugganum í ensku úrvalsdeildinni verður lokað 22:00 annað kvöld og það er ýmislegt í gangi. BBC tók saman það helsta sem kastljósið beinist að núna þegar gluggalok eru handan við hornið.

TENGT EFNI
Tottenham spyr um Pulisic - Liverpool og Everton hafa áhuga á Leweling
Bradley Barcola kantmaður PSG er nálægt því að verða leikmaður Liverpool.
Hugsanleg kaup Arsenal á argentínska landsliðsmanninum Julian Alvarez er eitt það allra áhugaverðasta. Alvarez vill helst fara til Barcelona en Atletico Madrid vill alls ekki selja hann þangað.
Enzo Fernandez var ekki með Chelsea gegn Brighton og framtíð hans er í óvissu. Hann er sterklega orðaður við stóra sölu til Manchester City. Enzo Maresca vill styrkja miðsvæði sitt eftir að Rodri, Bernardo Silva, Nico Gonzalez og Tijjani Reijnders yfirgáfu City í sumar.
Ef Chelsea selur Enzo gæti félagið keypt Lamine Camara frá Mónakó. Þá er líklegt að Chelsea láni Mykhailo Mudryk.
Manchester City er í viðræðum við Liverpool um hollenska kantmanninn Cody Gakpo og hann hefur áhuga á að færa sig um set. Tottenham hefur einnig áhuga en Gakpo vill frekar fara til City.
Eftir að Brighton hafnaði tveimur tilboðum frá Liverpool í Yankuba Minteh þá hefur Liverpool snúið sér að Ismaila Sarr. Crystal Palace vill hinsvegar fá meira en þær 60 milljónir punda sem Liverpool hefur boðið.
Tottenham er í viðræðum við Everton um að fá Iliman Ndiaye og Richarlison gæti þá farið öfuga leið. Manchester City hefur einnig sýnt Ndiaye áhuga.
Auknar líkur eru á því að Everton fái Jack Grealish aftur á láni frá Manchester City.
Matias Fernandez-Pardo, 21 árs gamall sóknarleikmaður frá Belgíu, er á óskalista Newcastle. Hann er samherji Hákonar Arnars Haraldssonar hjá Lille. Davide Ancelotti stjóri Lille ákvað að hafa Fernandez-Pardo utan hóps um helgina á meðan framtíð hans er í óvissu.
Joshua Zirkzee gæti yfirgefið Manchester United og þar er Juventus helst í umræðunni núna.