Danmörk lagði Svíþjóð að velli
Það fóru nokkrir stórleikir fram í undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM í dag og í kvöld.
Spánn rúllaði yfir England í íslenska riðlinum þar sem lokatölur urðu 4-0. Spánverjar ná með þessum sigri að taka yfir toppsæti riðilsins fyrir lokaumferðina.
Alexia Putellas var atkvæðamest í liði Spánverja með tvennu og gaf Mariona Caldentey tvær stoðsendingar.
Þýskaland lagði þá Noreg að velli í öðrum stórleik á meðan Danmörk hafði betur gegn Svíþjóð þökk sé sigurmarki Pernille Harder.
Frakkland, Ítalía og Austurríki unnu einnig sína leiki á meðan Írland skóp afar óvæntan sigur gegn Hollandi.
Þetta þýðir að Ítalía og Svíþjóð eiga framundan úrslitaleik um annað sætið í riðli 1, þar sem Ítalir eiga eins stigs forystu.
Frakkland, Írland og Holland eru að berjast um toppsætið í riðli 2 og þá er Þýskaland búið að tryggja sér toppsætið í riðli 4.
Spánn 4 - 0 England
1-0 Patricia Guijarro ('19)
2-0 Alexia Putellas ('37)
3-0 Alexia Putellas ('55)
4-0 Claudia Pina ('78)
Þýskaland 2 - 0 Noregur
1-0 Marie Muller ('17)
2-0 Carlotta Wamser ('27)
Danmörk 2 - 1 Svíþjóð
1-0 Cecilie Floe ('25)
1-1 Johanna Kaneryd ('52)
2-1 Pernille Harder ('65)
Pólland 0 - 2 Frakkland
0-1 Melvine Malard ('47)
0-2 Sandy Baltimore ('62)
Ítalía 3 - 0 Serbía
1-0 Valentina Bergamaschi ('61)
2-0 Arianna Caruso ('81)
3-0 Barbara Bonansea ('88)
Austurríki 1 - 0 Slóvenía
1-0 K. Naschenweng ('54)
Írland 3 - 2 Holland
1-0 K. Carusa ('19)
1-1 D. Janssen ('70, víti)
2-1 A. Larkin ('71)
2-2 V. Pelova ('80)
3-2 A. Barrett ('90)



