26.07.26 - 21:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Stjarnan fékk fimm mörk á sig í endurkomu Jóns Þórs á Skagann

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA vann öruggan sigur á Stjörnunni á Akranesi í kvöld. Jón Þór Hauksson sneri aftur á Skagann en fyrrum þjálfari ÍA þjálfar Stjörnuna í dag. Haukur Andri Haraldsson skoraði snemma leiks með skoti í autt markið eftir sendingu frá Viktori Jónssyni.
Stuttu síðar tvöfaldaði Viktor forystu Skagamanna. Þeir voru ekki hættir því Jón Gísli Eyland Gíslason skoraði þriðja markið. Hann átti laglegt samspil við Gísla Eyjólfsson og átti svo skot sem fór af Gustav Kjeldsen og sveif yfir Árna Snæ Ólafsson í marki Stjörnunnar.

Andri Rúnar Bjarnason náði að minnka muninn fyrir Stjörnuna eftir rúmlega klukkutíma leik. Markús Páll Ellertsson bætti svo fjórða marki Skagamanna við stuttu síðar eftir slæm mistök hjá Árna Snæ.
Stjörnumenn fengu tækifæri til að klóra í bakkann undir lokin þegar liðið fékk vítaspyrnu en Árni Marinó Einarsson varði frá Árna Vilhjálmssyni. Markús Páll refsaði Stjörnumönnum stuttu síðar og innsiglaði stórsigur Skagamanna.
ÍA er í 7. sæti með 18 stig en Stjarnan er í 9. sæti með 15 stig.
Fram og FH skildu jöfn á Lambhagavellinum. Fyrri hálfleikurinn var frekar bragðdaufur en Fram var nálægt því að komast yfir í lok fyrri hálfleiksins. Sigurjón Rúnarsson átti skalla að marki en FH-ingar náðu að bjarga á síðustu stundu.
FH-ingar komu sterkir út í seinni hálfleikinn og Ísak Óli Ólafsson var nálægt því að koma FH yfir en setti boltann í stöngina. Kjartan Kári Halldórssoon komst síðan í tvö færi með stuttu millibili en tókst ekki að skora.
Framarar komust síðan í virkilega góða stöðu. Róbert Hauksson átti hins vegar slæma sendingu þvert yfir teiginn og Jakob Byström náði ekki til boltans.
Nær komust liðin ekki og markalaust jafntefli niðurstaðan. Fram er í 3. sæti með 34 stig en FH er í 11. sæti með 13 stig.
Fram 0 - 0 FH
Lestu um leikinn
ÍA 5 - 1 Stjarnan
1-0 Haukur Andri Haraldsson ('4 )
2-0 Viktor Jónsson ('10 )
3-0 Jón Gísli Eyland Gíslason ('26 )
3-1 Andri Rúnar Bjarnason ('66 )
4-1 Markús Páll Ellertsson ('72 )
4-1 Árni Vilhjálmsson ('85 , misnotað víti)
5-1 Markús Páll Ellertsson ('86 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 16 | +42 | 43 |
| 2 | KR | 16 | +22 | 35 |
| 3 | Fram | 16 | +13 | 34 |
| 4 | Breiðablik | 15 | +8 | 26 |
| 5 | Valur | 16 | -6 | 19 |
| 6 | Keflavík | 16 | -8 | 19 |
| 7 | ÍBV | 15 | -7 | 16 |
| 8 | Stjarnan | 15 | -8 | 15 |
| 9 | ÍA | 15 | -12 | 15 |
| 10 | KA | 15 | -8 | 14 |
| 11 | FH | 16 | -11 | 13 |
| 12 | Þór | 15 | -25 | 11 |