Fotbolti.net
26.07.26 - 17:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Frábærar fréttir fyrir Framara

Vuk Oskar í leik gegn KR í sumar

Vuk Oskar í leik gegn KR í sumar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram hefur tilkynnt að þrír leikmenn hafi framlengt samninga sína við félagið. Þeir Vuk Oskar Dimitrijevic, Haraldur Einar Ásgrímsson og Róbert Hauksson hafa framlengt samninga sína út árið 2028.
Haraldur Einar er uppalinn Framari, hann hefur spilað yfir 100 leiki fyrir félagið. Þá hefur hann verið sterkur fyrir framan markið undanfarið, hann hefur skorað þrjú mörk en honum tókst ekki að skora síðasta sumar.

Vuk Oskar gekk til liðs við félagið frá FH í fyrra. Það er ánægjulegt fyrir Framara að hann framlengi en hann var orðaður við KR fyrr í sumar. Hann hefur skorað tvö mörk í 14 leikjum í Bestu deildinni í sumar.

Róbert gekk til liðs við félagið frá Leikni í fyrra. Hann hefur skorað eitt mark í níu leikjum í Bestu deildinni í sumar.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.