Fotbolti.net
26.07.26 - 19:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Amin Cosic þreytti frumraun sína í Íslendingaslag

Amin Cosic þreytti frumraun sína í Íslendingaslag
Canon

Mynd: Viking Stavanger

Amin Cosic þreytti frumraun sína fyrir norska liðið Viking í kvöld þegar liðið heimsótti Álasund í efstu deild í Noregi.

Viking var 1-0 yfir í hálfleik en Álasund jafnaði metin strax í upphafi seinni hálfleiks. Amin kom inn á undir lok leiksins en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn. 1-1 lokatölur.
Ólafur Guðmundsson var í byrjunarliði Álasund og Davíð Snær Jóhannsson kom inn á sem varamaður. Viking er í 2. sæti með 34 stig eftir 14 umferðir. Álasund er í 13. sæti með 13 stig.

Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Horsens sem gerði 1-1 jafntefli gegn Nordsjælland í fyrstu umferð dönsku deildarinnar. Daníel Ingi Jóhannesson er á mála hjá Nordsjælland en hann var ekki í hópnum í kvöld.

Davíð Kristján Ólafsson spilaði sinn fyrsta deildarleik fyrir Polonia Warszawa í pólsku deildinni þegar liðið vann 1-0 sigur á Puszcza í fyrstu umferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.