Fotbolti.net
26.07.26 - 21:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson

The Athletic: Real Madrid og Leipzig ekki búin að ná samkomulagi

The Athletic: Real Madrid og Leipzig ekki búin að ná samkomulagi
Canon

Mynd: EPA

Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Yan Diomande, leikmann RB Leipzig, í dag. TalkSPORT og Fabrizio Romano fullyrtu að Real Madrid hafi náð samkomulagi við Leipzig um kaupverð á þessum 19 ára gamla Fílabeinsstrending.
PSG hættir að eltast við Diomande - „Óhóflegar kröfur"
TENGT EFNI

PSG hættir að eltast við Diomande - „Óhóflegar kröfur"

PSG dró sig úr baráttunni og sagði við Sky í Þýskalandi að kröfur Leipzig og leikmannsins væru of háar.

Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi segir að ekkert samkomulag sé í höfn og David Ornstein hjá The Athletic tekur undir það.

Ornstein segir þó að það sé stutt í samkomulag. Leipzig hafnaði fyrsta tilboði Real Madrid í síðustu viku og Real lagði fram 120 milljón evra tilboð í hann í kjölfarið.

Leipzig hefur ekki gefið grænt ljós og Ornstein segir að Leipzig muni að öllum líkindum hafna tilboðinu. Hann segir þó að það sé bjartsýni hjá öllum að samkomulag náist á næstunni.

Leipzig vill fá í kringum 130 milljónir evra fyrir hann en félagið hefur einnig reynt að sannfæra leikmanninn um að framlengja samning sinn við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.