Fotbolti.net
05.07.26 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Dýrasti Rúmeni sögunnar fer aftur til Ítalíu

Dýrasti Rúmeni sögunnar fer aftur til Ítalíu
Canon

Mynd: EPA

Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskipti varnarmannsins Radu Dragusin frá Tottenham og aftur í ítalska boltann.
Dragusin fer til Fiorentina á lánssamningi með kaupskyldu en fjólubláa liðið frá Flórens hefur haft mikinn áhuga á honum allt tímabilið.

Tottenham gerði Dragusin að dýrasta Rúmena fótboltasögunnar þegar liðið keypti hann úr röðum Genoa í janúar 2024, fyrir um 25 milljónir evra.

Hann fann aldrei taktinn í enska boltanum og spilaði í heildina 48 leiki á tveimur og hálfu ári hjá Tottenham.

Talið er að Fiorentina muni borga um 15 til 20 milljónir evra til að kaupa Dragusin í sínar raðir.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.