Fotbolti.net
09.05.26 - 21:30
Fótbolti.net

Lið og leikmaður 3. umferðar - Sigurður Egill með fullt hús

Ibrahima Balde er leikmaður umferðarinnar.

Ibrahima Balde er leikmaður umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Það eru þrjár umferðar búnar í Lengjudeildinni og Þróttur er eina liðið sem er með fullt hús stiga. Hér má sjá lið umferðarinnar.

LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Ibrahima Balde - Vestri
Balde átt frábæran leik í 4-3 sigri Vestra gegn HK, skoraði tvö frábær mörk og átti heldur betur stóran þátt í fyrsta sigri sinna manna á tímabilinu. Balde yfirgaf Þór óvænt í vetur og gekk aftur í raðir Vestra.


Jóhann Þór Arnarsson skoraði tvö mörk fyrir HK á Ísafirði og kemst í lið umferðarinnar. Mörkin dugðu þó skammt fyrir hans menn.

Sigurður Egill Lárusson hefur verið í liði umferðarinnar í öllum þremur umferðunum en hann var maður leiksins í 3-0 sigri Þróttar gegn Völsungi á Húsavík. Aron Snær Ingason var meðal markaskorara Þróttar og þá er Sigurvin Ólafsson þjálfari umferðarinnar.

Víðir Freyr Ívarsson var maður leiksins þegar ÍR gerði 2-2 jafntefli við Grindavík. Hann skoraði fyrsta mark leiksins. Grímur Ingi Jakobsson skoraði eina mark leiksins af vítapunktinum þegar Grótta vann 1-0 útisigur gegn Ægi.

Bart Kooistra var með mark og stoðsendingu í 3-0 útisigri Aftureldingar gegn Leikni. Axel Óskar Andrésson var flottur í vörninni í fyrsta sigri Mosfellinga og Arnar Daði Jóhannesson er einnig í úrvalsliðinu.

Bragi Karl Bjarkason skoraði fyrra mark Njarðvíkur í 2-0 sigri gegn Fylki í stórleik umferðarinnar. Eiður Aron Sigurbjörnsson lagði upp fyrra markið og varðist mjög vel.

Fyrri úrvalslið:
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR
Sigurður Egill Lárusson.

Sigurður Egill Lárusson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lið og leikmaður 3. umferðar - Sigurður Egill með fullt hús
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding20+3142
2Þróttur R.20+1837
3Fylkir20+1237
4HK20+1235
5Njarðvík20+1035
6Grótta20-327
7Vestri20-927
8Leiknir R.20025
9ÍR20-525
10Grindavík20-1121
11Völsungur20-1620
12Ægir20-398
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.