Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   þri 02. júní 2026 10:00
Fótbolti.net
Lið og leikmaður 7. umferðar - Miðvörður með tvennu
Lengjudeildin
Andi Hoti er leikmaður umferðarinnar.
Andi Hoti er leikmaður umferðarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Shkelzen Veseli.
Shkelzen Veseli.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Afturelding er á flugi eftir erfiða byrjun og er á toppi Lengjudeildarinnar eftir magnaðan 5-1 sigur gegn Fylki í sjöundu umferð. Eldingin er stigi á undan Árbæingum.

LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Andi Hoti - Afturelding
Breiðhyltingurinn kom á láni til Aftureldingar frá Val fyrir tímabilið. Miðvörðurinn stóð vaktina virkilega vel í vörn Mosfellinga í sigrinum gegn Fylki og skoraði að auki tvö mörk. Leikmaður umferðarinnar.



Joachim Holtan var með mark og stoðsendingu og kemst einnig í úrvalsliðið. Magnús Már Einarsson er þjálfari umferðarinnar.

Eftir hikst að undanförnu náði Þróttur aftur sigri, vann 2-0 gegn Grindavík. Kári Kristjánsson var með mark og stoðsendingu í liði Þróttara. Brynjar Gautur Harðarson var öflugur á miðjunni.

Það urðu óvænt úrslit í Breiðholti þegar Leiknir vann 4-1 sigur á HK. Shkelzen Veseli skoraði tvö mörk fyrir Leikni og markvörðurinn frábæri Ólafur Íshólm Ólafsson átti enn og aftur öflugan leik.

Grótta heldur áfram að koma á óvart og vann 2-1 útisigur gegn Njarðvík. Grímur Ingi Jakobsson skoraði fyrsta mark leiksins og þá er Kristófer Dan Þórðarson einnig í úrvalsliðinu.

Konstantin Cheshmedjiev skoraði sigurmark Vestra sem vann 1-0 útisigur gegn ÍR í Breiðholtinu. Hann var valinn maður leiksins.

Markús Máni Jónsson skoraði í 3-2 útisigri Ægis gegn Völsungi á Húsavík og var valinn maður leiksins. Stefan Dabetic fyrirliði Ægis átti einnig hörkuflottan leik.

Fyrri úrvalslið:
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Afturelding 7 5 1 1 22 - 13 +9 16
2.    Fylkir 7 5 0 2 12 - 8 +4 15
3.    Þróttur R. 7 4 1 2 16 - 9 +7 13
4.    HK 7 4 0 3 14 - 13 +1 12
5.    Grótta 7 4 0 3 14 - 15 -1 12
6.    Vestri 7 3 1 3 11 - 15 -4 10
7.    Leiknir R. 7 2 3 2 8 - 10 -2 9
8.    Njarðvík 7 2 2 3 6 - 6 0 8
9.    ÍR 7 2 1 4 15 - 17 -2 7
10.    Ægir 7 2 1 4 9 - 11 -2 7
11.    Grindavík 7 1 4 2 7 - 9 -2 7
12.    Völsungur 7 0 2 5 4 - 12 -8 2
Slapp
banner