Fotbolti.net
19.05.26 - 09:35
Fótbolti.net

Lið og leikmaður 4. umferðar - Gamlir vinir gengu frá Njarðvík

Svavar Örn er leikmaður umferðarinnar.

Svavar Örn er leikmaður umferðarinnar.

Canon

Mynd: HK

Lengjudeildin
Fjórða umferð Lengjudeildarinnar var spiluð á sunnudag og mánudag. HK vann 2-0 sigur á Njarðvík í stórleik umferðarinnar og Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem stýrði auðvitað Njarðvík en er núna með HK, er þjálfari umferðarinnar. Þá er leikmaður umferðarinnar uppalinn Njarðvíkingur sem fylgdi Gunnari til HK.

LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Svavar Örn Þórðarson - HK
Þessi sterki varnarmaður var hrikalega öflugur fyrir HK gegn sínu fyrrum félagi. „Að Gunnar Heiðar fór yfir í HK spilaði auðvitað stóran part, ég er búinn að vera hjá honum síðustu tvö ár hjá Njarðvík og hef fundið fyrir miklu trausti frá honum og teyminu þannig að tækifærið að halda því áfram var bara frábært," sagði Svavar við Fótbolta.net í vetur um skiptin í HK.
Erfitt og skrítið að skipta um félag: Vegferðin, aðstaðan og Gunnar Heiðar heilluðu
TENGT EFNI

Erfitt og skrítið að skipta um félag: Vegferðin, aðstaðan og Gunnar Heiðar heilluðu



HK er í öðru sæti Lengjudeildarinnar með 9 stig, einu stigi á eftir Þrótti sem er á toppnum. Þróttur gerði 1-1 jafntefli gegn Leikni þar sem markvörðurinn Ólafur Íshólm Ólafsson hjá Leikni var valinn maður leiksins og félagi hans Marko Veselinovic var öflugur í vörninni.

Fylkir sigraði ÍR 2-1 með flautumarki. Máni Austmann Hilmarsson fylgdi eftir góðri frammistöði í burstinu gegn FH og skoraði fyrra mark Árbæinga. Tumi Fannar Gunnarsson er einnig í liði umferðarinnar. Fylkir er með 9 stig, líkt og HK.

Afturelding tengdi saman sigra og vann 3-1 útisigur gegn Gróttu. Bart Kooistra skoraði og var valinn maður leiksins. Axel Óskar Andrésson var öflugur í vörninni.

Vestri lenti undir gegn Ægi en náði að vinna með mörkum sem Elmar Atli Garðarsson og Ibrahima Balde skoruðu.

Haraldur Björgvin Eysteinsson var meðal markaskorara Grindavíkur sem vann 3-1 gegn Völsungi. Christian Bjarmi Alexandersson er einnig í liði umferðarinnar.
Axel Óskar Andrésson í leiknum gegn Gróttu.

Axel Óskar Andrésson í leiknum gegn Gróttu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Fylkir14+1230
3HK15+1028
4Þróttur R.14+1327
5Grótta14+122
6Vestri15-521
7Njarðvík14+120
8Leiknir R.14019
9Grindavík14-314
10ÍR15-1113
11Völsungur14-178
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.