Fotbolti.net
23.05.26 - 22:40
Elvar Geir MagnússonFótbolti.net

Lið og leikmaður 5. umferðar - 16 ára skoraði tvö og var allt í öllu

Hinn 16 ára gamli Mattías Kjeld er leikmaður umferðarinnar.

Hinn 16 ára gamli Mattías Kjeld er leikmaður umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lengjudeildin
Fimm umferðum er lokið í Lengjudeild karla og hér má lið umferðarinnar. Leikmaður umferðarinnar er aðeins 16 ára en það er Mattías Kjeld í Gróttu. Hann gekk í raðir félagsins frá Val fyrir tímabilið.

LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Mattías Kjeld - Grótta
Mattías var allt í öllu hjá Gróttu sem vann 5-3 sigur gegn Vestra, skoraði tvennu og kom sér og liðinu oft í mjög góðar stöður. Fyrra mark hans var stórglæsilegt, með skoti fyrir utan vítateigshornið upp í fjærhornið. Frábær afgreiðsla. Það seinna kom úr vítaspyrnu


Grótta á tvo aðra fulltrúa í liði umferðarinnar en það eru Guðmundur Rafn Ingason markvörður og Björgvin Brimi Andrésson sem var meðal markaskorara. Mikilvægur sigur Gróttu sem er með sex stig, einu stigi minna en Vestri.

Fylkir er á toppi deildarinnar eftir nauman 1-0 útisigur gegn Völsungi. Orri Sveinn Segatta var valinn maður leiksins. Fylkismenn eru með tólf stig.

Liðin í öðru og þriðja sæti mættust í Mosó þar sem Afturelding vann Þrótt 4-3. Bæði lið eru með tíu stig. Elmar Kári Enesson Cogic skoraði tvö mörk fyrir Afturelding og Sigurður Egill Lárusson tvö fyrir Þrótt. Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar er þjálfari umferðarinnar.

Í Breiðholti skoraði Orri Bjarkason tvö mörk fyrir ÍR sem vann flottan baráttusigur 3-1 gegn HK. Bergvin Fannar Helgason var öflugur í sókn ÍR.

Arnór Gauti Úlfarsson í Grindavík var maður leiksins í markalausu jafntefli gegn Leikni. Daði Bærings Halldórsson þótti bestur Leiknismanna.

Njarðvíkingar byrja mótið illa en Eiður Aron Sigurbjörnsson er í liði umferðarinnar eftir markalaust jafntefli gegn Ægi.

Fyrri úrvalslið:
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR
Orri Sveinn Segatta.

Orri Sveinn Segatta.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elmar Cogic.

Elmar Cogic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.8+916
2Afturelding8+816
3HK8+215
4Fylkir8+215
5Vestri8013
6Leiknir R.8+112
7Grótta7-112
8Njarðvík8+411
9Grindavík7-27
10Ægir8-57
11ÍR8-67
12Völsungur8-122
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.