Fotbolti.net
07.06.26 - 17:40
Fótbolti.net

Lið og leikmaður 8. umferðar - Siggi Lár var allt í öllu

Sigurður Egill Lárusson er leikmaður umferðarinnar.

Sigurður Egill Lárusson er leikmaður umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Þróttarar eru komnir á topp Lengjudeildarinnar eftir áttundu umferð. Þróttur vann stórleikinn gegn Fylki 3-1 og nýtti sér það að Afturelding tapaði 2-1 gegn HK í Kórnum. Þróttur og Afturelding eru bæði með 16 stig en Þróttur hefur betri markatölu.

LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
Reynsluboltinn var allt í öllu í sóknarleik gestanna úr Laugardalnum og skoraði tvö mörk ásamt því að skila góðu varnarframlagi. Hann er leikmaður umferðarinnar og er í fimmta sinn í liði umferðarinnar þetta tímabilið. Hefur svo sannarlega reynst Þrótturum vel.
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
TENGT EFNI

Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum



Magnús Þórðarson var mjög skapandi fyrir Þrótt og skoraði hið mikilvæga þriðja mark. Sigurvin Ólafsson er þjálfari umferðarinnar.

Ólafur Örn Ásgeirsson var maður leiksins í Kórnum. HK er ásamt Fylki með 15 stig.

Vestri var í stuði og vann Völsung 5-1. Breki Þór Hermannsson skoraði eitt mark og lagði upp þrjú. Gunnar Jónas Hauksson skoraði tvö mörk,

Dagur Ingi Hammer átti rosalega innkomu fyrir Leikni sem vann Ægi 3-0 á útivelli. Hann kom fullur af orku af bekknum, skoraði eitt og lagði upp tvö til viðbótar. Anton Fannar Kjartansson skoraði og lék feikilega vel gegn sínu fyrrum félagi. Daði Bærings Halldórsson fyrirliði Leiknis var flottur á miðjunni en getur líka spilað í vörninni og gerir það í úrvalsliðinu.

Hrafn Guðmundsson var langbestur á vellinum þegar Njarðvík slátraði ÍR 5-1. Skoraði eitt mark og lagði upp tvö. Arnleifur Hjörleifsson var meðal markaskorara í nauðsynlegum sigri Njarðvíkur.

Leik Gróttu og Grindavíkur var frestað vegna verkefna með unglingalandsliðum.

Fyrri úrvalslið:
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR
Ólafur Örn Ásgeirsson var maður leiksins í Kórnum.

Ólafur Örn Ásgeirsson var maður leiksins í Kórnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Dagur Ingi Hammer reyndist Ægi erfiður.

Dagur Ingi Hammer reyndist Ægi erfiður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Fylkir14+1230
3HK15+1028
4Þróttur R.14+1327
5Grótta14+122
6Vestri15-521
7Njarðvík14+120
8Leiknir R.14019
9Grindavík14-314
10ÍR15-1113
11Völsungur14-178
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.