Fotbolti.net
05.08.15 - 21:55
Valur Páll Eiríksson
Skrifar frá: Kópavogsvelli

Haukur Ingi: Engin orsakatengsl milli kaupanna og fjárhagsaðstoðarinnar

Auglýsing
Haukur Ingi: Engin orsakatengsl milli kaupanna og fjárhagsaðstoðarinnar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst fyrstu 40 mínúturnar vera bara þokkalegar og við vera vel inní leiknum, áttum sláarskot og standa okkur þokkalega vel. Við fáum svo tvö mörk í andlitið á 42. og 43. mínútu og förum inn í hálfleikinn 2-0 undir sem gefur kannski ekki alveg rétta mynd af fyrri hálfleiknum.\" sagði Haukur Ingi Guðnason, annar þjálfara Keflavíkur, eftir 4-0 tap á Kópavogsvelli í kvöld.
Haukur var spurður hvort liðið hefði hrunið einfaldlega eftir fyrsta markið en annað fylgdi í kjölfarið og svo skoruðu Blikar snemma í síðari hálfleik.

„Mér fannst 1-0 markið ekki vera vendipunkturinn mér fannst 3-0 markið vera kannski stóri vendipunkturinn eða a.m.k. hvernig við komum út í seinni hálfleikinn. Blikar stigu líka upp og spiluðu eins og þeir best geta í síðari hálfleik en það var líka að stóru leyti vegna þess að við vorum of langt frá þeim og þetta leit kannski út í síðari hálfleik eins og það væri meistaraflokkur að spila gegn 3. eða 4. flokki.\"

Haukur var svo spurður út í kaupin og fjárhaginn en Keflavík fékk inn fimm leikmenn í glugganum og biðlaði svo til bæjarbúa eftir fjárhagsaðstoð skömmu síðar.

„Ég held að þetta sé algerlega ótengt. Kannski var tímapunkturinn þar sem þetta var sett fram óheppilegur í því ljósi að við vorum nýbúnir að fá þessa leikmenn en þetta er eitthvað sem gengur og gerist hjá mörgum klúbbum.\"

„Það eru margir klúbbar sem eru með svona aðstoð frá sínum félagsmönnum og ég held að menn hafi farið að tengja þetta saman útaf því að þetta átti sér stað í tíma en ég held að það séu engin orsakatengsl þarna á milli. Vegna þess að við erum ekki bara að fá inn útlendinga, við erum líka að losa menn. Við losuðum Richard (Arends), markmann, Kiko (Insa) fór líka og Indriði líka, svo erum við að missa menn út í skóla þannig að heilt yfir eru við ekki að fjölga leikmönnum og fjárhagslega skilst mér að við séum ekki að bæta við okkur.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.