21.10.26 - 08:44
Elvar Geir Magnússon
KSÍ harmar vinnubrögð ÍA - Engin tilraun til að gera völlinn leikhæfan

Verið er að undirbúa lagningu á gervigrasi á Akranesi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Akraneshöllin.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ.

Leikur ÍA og Keflavíkur í lokaumferð Bestu deildarinnar næsta laugardag hefur verið færður inn í Akraneshöll. Aðalvöllur ÍA hefur verið metinn óleikhæfur eftir framkvæmdir en verið er að undirbúa lagningu á gervigrasi.
Mótanefnd KSÍ sendi félögunum bréf þar sem hún harmar hvernig staðið var að framkvæmdunum og segir mannana verk ástæðuna fyrir því að undanþága sé veitt til að spila í Akraneshöllinni. Sú ákvörðun hafi ekki verið einróma.
Í bréfinu, sem Fótbolti.net hefur undir höndum, segir að ekki hafi verið haft neitt samráð við KSÍ og engin tilraun gerð til að reyna að gera völlinn leikhæfan.

TENGT EFNI
„Til skammar fyrir Bestu deildina“
„Hér er um undanþáguósk að ræða þar sem Akraneshöll er ekki með vallarleyfi fyrir Bestu deild karla. Í erindinu (frá ÍA) kemur fram að um sé að ræða ófyrirséð áhrif framkvæmda við gerð prufuhola í vellinum sem gerir leikvöllinn óleikhæfan. Í framhaldinu var óskað eftir myndum af vellinum sem sýnir berlega að völlurinn er óleikfær," segir í bréfinu.
„Prufuholurnar voru teknar 9. október þrátt fyrir að vitað væri að ÍA ætti eftir að leika á vellinum þann 24. október. Nefndin þykir leitt að ekki hafi verið hægt að gera þessar prufuholur með viðeigandi búnaði strax og landsleikjahléið hófst 21. september til að auka líkur á því að völlurinn yrði leikfær fyrir þennan leik."
„Ekki var haft samráð við KSÍ um þessa aðgerð. Í framhaldinu kemur þessi ósk ÍA. Að mati nefndarinnar hefur ekki verið sýnt fram á að reynt hafi verið að fara í viðgerðir á vellinum svo hægt væri að leika þar. Má því ætla að ÍA hafi gefið sér á þeim tíma að undaþága fengist fyrir að leika í Akraneshöll. Því til stuðnings má ljóst vera að undirbúningur var hafinn á því að loka vellinum með því að fjarlæga auglýsingaspjöld vallarins."
„Mótanefnd KSÍ hefur í nokkrum tilfellum heimilað að leikir fari fram í Akraneshöll þegar vallaraðstæður að vori og hausti eru þannig að ekki er hægt að leika. Nú eru þau skilyrði ekki uppi, heldur er leikvöllurinn óleikhæfur vegna ákvarðana sem teknar voru af ÍA og fleiri aðilum án samráðs við KSÍ. Það eru því mannanna verk en ekki náttúruöflin sem gera það að verkum að leikvöllurinn er óleikhæfur."
„Rétt er að hér komi fram að mótanefnd KSÍ harmar þau vinnubrögð sem viðhöfð voru við þessa framkvæmd, sérstaklega samráðsleysi við KSÍ og að engin tilraun hafi verið gerð til að lagfæra skemmdir í vellinum og gera hann leikhæfan. Afleiðingin er sú að völlurinn er óleikhæfur. Nefndin telur sig ekki eiga annan kost en að samþykkja undanþágu um að leika í Akraneshöll. Sú ákvörðun er ekki einróma. Með von um að undirbúningur við fyrirhugaðar framkvæmdir gangi sem best og nýr leikvöllur verði að veruleika."

Besta karla - Efri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 26 | +51 | 63 |
| 2 | KR | 26 | +30 | 53 |
| 3 | Fram | 26 | +9 | 46 |
| 4 | ÍA | 26 | -1 | 37 |
| 5 | Breiðablik | 26 | +2 | 36 |
| 6 | Keflavík | 26 | -11 | 29 |