Fotbolti.net
21.10.26 - 11:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Matti Villa: Bara bull hjá Gumma Ben

Matthías lagði skóna á hilluna fyrir ári síðan og tók að sér þjálfun í yngri flokkum Víkings.

Matthías lagði skóna á hilluna fyrir ári síðan og tók að sér þjálfun í yngri flokkum Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Matthías Vilhjálmsson var á mánudagskvöld sterklega orðaður við aðstoðarþjáfarastarfið hjá Stjörnunni. Það var Guðmundur Benediktsson, þáttarstjórnandi Stúkunnar á Sýn Sport sem sagði frá því að samkvæmt sínum heimildum væri Matthías á leið í Stjörnuna og myndi aðstoða Rúnar Pál Sigmundsson sem var ráðinn nýr þjálfari liðsins í síðustu viku.

Í samtali við Fótbolta.net í dag segir Matti að það sé ekki rétt, hann sé ekki á leið í Stjörnuna.
Matti Villa og Viktor Bjarki í Garðabæinn?
TENGT EFNI

Matti Villa og Viktor Bjarki í Garðabæinn?

„Það er bara bull, ekki rétt. Ég er þjálfari hjá Víkingi eins og staðan er núna, er í fríi og er að skoða mín mál. Það hafa komið einhverjar fyrirspurnir sem ég hef verið að skoða, en ekkert sem er frágengið," segir Matti.

Hefur Stjarnan haft samband við þig eða Rúnar Páll?

„Ég ætla ekki að vera ræða það mikið. Nokkur félög hafa haft samband og ég er að vega og meta hvað sé best fyrir sjálfan mig. Þetta var bara eitthvað alvöru 'silly season' dæmi hjá Gumma."

Matti var þjálfari 2. og 3. flokks Víkings á liðnu tímabili. „Við erum að skoða þetta allt í sameiningu, hvað sé best fyrir mína þjálfaravegferð. Það hefur verið ansi mikið að gera, skemmtilegt og krefjandi að vera með tvo flokka. Ég er að skoða þetta í rólegheitunum," segir Matti.
Matti Villa: Bara bull hjá Gumma Ben
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.