21.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Aldrei verða ástfanginn af lánsmanni

Ronald Araujo skoraði annan Meistaradeildarleikinn í röð

Mynd: EPA

Araujo er með 47 milljóna punda kaupákvæði í lánssamningnum

Það er oft sagt að stuðningsmenn eigi aldrei að verða ástfangnir af lánsmanni, en fyrir stuðningsmenn Liverpool gæti það nú þegar verið orðið of seint.

TENGT EFNI
Araujo: Ég er mjög ánægður hjá Liverpool
Liverpool fékk Ronald Araujo, fyrirliða Barcelona, óvænt á láni út tímabilið, en félagið hefur möguleika á að kaupa hann fyrir 47 milljónir punda á meðan lánsdvölinni stendur.
Araujo sætti mikilli gagnrýni hjá Barcelona og voru margir stuðningsmenn félagsins þeirrar skoðunar að hann væri einfaldlega ekki nógu góður til að spila fyrir liðið.
Stuðningsmenn Liverpool vissu því ekki alveg við hverju þeir áttu að búast þegar Araujo mætti til félagsins, en hann hefur heldur betur unnið þá á sitt band með hverri frábæru frammistöðunni á fætur annarri.
Hann skoraði sitt annað mark í Meistaradeildinni fyrir Liverpool í 4-3 sigrinum á Villarreal í gær og hefur reynst nákvæmlega sá leikmaður sem félagið þurfti á að halda til að styrkja vörnina.
Araujo hefur spilað svo vel að hann er orðinn fastamaður í hægri bakverðinum og verður það eflaust áfram á meðan Conor Bradley er frá vegna meiðsla. Jeremie Frimpong hefur heldur ekki náð að heilla, frekar en á síðasta tímabili.
Fyrir leikinn gegn Villarreal var Araujo spurður út í samband sitt við stuðningsmenn Liverpool, sem hafa tekið honum opnum örmum.
Fréttakona minntist þá á gamla frasann um að maður ætti aldrei að verða ástfanginn af lánsmanni. Stuðningsmennirnir gætu nefnilega endað með brostið hjarta ef Araujo eða Liverpool ákveða að halda ekki samstarfinu áfram eftir tímabilið.
„Ég er ótrúlega þakklátur og það er svo fallegt fyrir mig sem leikmann þegar stuðningsmenn sjá hvað maður er að gera. Það skiptir mig miklu máli að finna fyrir allri þessari ást frá fólkinu og stuðningsmönnunum. Ég reyni alltaf að vera besta útgáfan af sjálfum mér og finn virkilega fyrir stuðningi þeirra þegar ég stíg inn á völlinn.“
„Stundum spilar maður vel og stundum illa, svona er fótboltinn. En þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta um að gefa allt sitt og það er nákvæmlega það sem ég ætla að halda áfram að gera. “ sagði Araujo um stuðninginn.