21.10.26 - 13:00
Elvar Geir Magnússon
Skiptingar Arteta reynst gulls ígildi

Síðan Arteta var ráðinn hefur Arsenal fengið fleiri sigurmörk frá varamönnum en nokkuð annað lið.

Mynd: EPA

Síðan Arteta var ráðinn hefur Arsenal fengið fleiri sigurmörk frá varamönnum en nokkuð annað lið.

Mynd: EPA
Arsenal hefur sigrað Nottingham Forest, Sunderland og Leeds á þessu tímabili þökk sé sigurmörkum frá varamönnum. Noni Madueke kom af bekknum og tryggði nauman sigur gegn Forest í síðustu umferð.
Metið yfir flest sigurmörk frá varamönnum á einu tímabili í ensku úrvalsdeildinni er sex. Ef Arsenal heldur áfram á sömu braut út tímabilið myndu yfir sextán sigurmörk kom af bekknum. Það er harla ólíklegt að það gerist en gefur skýra mynd af því hvernig skiptingar Arteta hafa breytt leikjum.

TENGT EFNI
Madueke: Sýndum meistaraanda
Umrætt met er í eigu Arsenal, undir stjórn Arteta 2024-25. Sem sýnir að þetta er engin tilviljun. Síðan Arteta var ráðinn í desember 2019 hefur Arsenal fengið fleiri sigurmörk frá varamönnum en nokkuð annað lið.
Heimild: Guardian

Mynd: Opta/Guardian