21.10.26 - 10:30
Brynjar Ingi Erluson
Carrick um ummæli Ten Hag: Það er hans skoðun

Michael Carrick

Mynd: EPA

Erik ten Hag

Mynd: EPA

Michael Carrick

Mynd: EPA
Michael Carrick, stjóri Manchester United, vildi ekki láta draga sig inn í umræðuna um ummæli Erik ten Hag, fyrrum stjóra félagsins.

TENGT EFNI
Vildi fá Rice og Kane til United
Ten Hag ræddi við Athletic um tíma sinn hjá United þar sem hann gagnrýndi meðal annars Cristiano Ronaldo, sagði frá leikmönnum sem hann vildi fá til félagsins en fékk ekki og ræddi eitrað andrúmsloft innan félagsins.
Carrick var spurður út í ummæli Ten Hag en sagðist ekki þekkja nógu vel til málanna til að geta tjáð sig um þau.
„Nei, ég hef ekki upplifað það þannig,“ sagði Carrick þegar hann var spurður um eitrað andrúmsloft innan félagsins.
„Þetta er skoðun Eriks og ég þekki ekki allar hliðar málsins. Það væri því rangt af mér að tjá mig um það.“
„Hjá félagi eins og þessu hafa úrslitin mikil áhrif á stemninguna, orkuna og þá neikvæðni sem getur myndast. En innan hópsins erum við yfirvegaðir og staðráðnir í því sem við erum að gera.“
„Við þurfum að halda ró okkar og beina hlutunum í rétta átt. Við eigum ákveðin samtöl innan hópsins þar sem við erum mjög skýrir með það sem við viljum,“ sagði Carrick.