21.10.26 - 11:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óskar snýr aftur í lokaleiknum - Verður hann seldur í vetur?

Stýrði fagnaðarlátunum þegar Víkingur tryggði titilinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Átt mjög gott tímabil.

Óskar Borgþórsson er klár í að spila eftir að hafa glímt við meiðsli síðustu mánuði. Óskar meiddist gegn Hapoel Beer Sheva í forkeppni Meistaradeildarinnar í júlí og hefur ekkert spilað síðan.
Hann gæti tekið þátt í lokaumferðinni þegar Fram kemur í heimsókn til Íslandsmeistaranna á Víkingsvöll. Eftir leik mun Víkingur lyfta Íslandsmeistaraskildinum annað árið í röð. Leikurinn hefst klukkan 16:15 á laugardag.

TENGT EFNI
Úrvalslið ársins í Bestu deildinni 2026
Óskar var einn allra besti leikmaður deildarinnar fyrir meiðsli og var valinn í lið ársins hér á Fótbolta.net.
Þessi 23 ára kantmaður skoraði níu mörk og lagði upp átta í 15 deildarleikjum fyrir meiðslin.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er talsverður áhugi á Óskari erlendis frá og báru erlend félög víurnar í hann í sumar án árangurs. Enska félagið Luton hefur verið orðað við hann að undanförnu og sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, að það myndi ekki koma á óvart ef Óskar færi út í atvinnumennsku í vetur.