21.10.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Keflavík reynir að kaupa markakóng Lengjudeildarinnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net lagt fram tilboð í Dominik Radic sem er framherji HK.
Fyrsta tilboði Keflavíkur var hafnað af HK en búast má við öðru tilboði frá Keflvíkingum.
Radic er þrítugur Króati sem var markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar í sumar ásamt Joacim Holtan með 16 mörk í deildarkeppninni og Radic bætti svo um betur og skoraði tvö mörk gegn Fylki í umspilinu.

Þetta var þriðja tímabilið hjá Radic en 2024 skoraði hann ellefu mörk fyrir Njarðvík og 2025 urðu mörkin tólf. Öll þrjú tímabilin hefur Radic spilað undir stjórn Gunnars Heiðars Þorvaldssonar. Radic á tvö ár eftir af samningi sínum við HK.
Keflvíkingar eru að skoða framherjamálin hjá sér en markahæsti leikmaður liðsins, Stefan Alexander Ljubicic, er með lausan samning eftir tímabilið og hefur verið orðaður í burtu.