Fotbolti.net
21.10.26 - 14:59
Elvar Geir Magnússon

Börsungar klaga PSG fyrir ofbeldisfulla mynd

Risastóra myndin umdeilda.

Risastóra myndin umdeilda.

Canon

Mynd: EPA

Barcelona hefur klagað Paris Saint-Germain til UEFA vegna risastórrar myndar sem stuðningsmenn sýndu í stúkunni fyrir viðureign liðanna í Meistaradeildinni.
Börsungar segja myndina hvetja til ofbeldis og haturs.

Fyrir upphaf leiks á Prinsavöllum afhjúpuðu stuðningsmenn PSG risastóran borða með mynd af grímuklæddum manni í PSG-treyju sem hélt á blóðugri keðjusag og var að eyðileggja merki Barcelona.

Undir myndinni var skrifað á frönsku: „Fjöldamorð, í Parísarstíl“ - Barcelona tapaði 4-2 í frönsku höfuðborginni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.