Fotbolti.net
21.10.26 - 11:16
Elvar Geir Magnússon
Meistaradeild

Kimmich ekki með gegn Arsenal vegna dauðsfalls í fjölskyldu hans

Joshua Kimmich verður ekki með Bæjurum af persónulegum ástæðum.

Joshua Kimmich verður ekki með Bæjurum af persónulegum ástæðum.

Canon

Mynd: EPA

Þriðja umferð í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu klárast í kvöld. Englandsmeistarar Arsenal heimsækja Þýskalandsmeistara Bayern München klukkan 19:00 þar sem Bæjarar verða án Michael Olise sem tekur út leikbann.

Annar lykilmaður Bayern, Joshua Kimmich, verður fjarri góðu gamni af persónulegum ástæðum.

„Vegna andláts í nánustu fjölskyldu er Joshua Kimmich ekki í hópnum í dag. Fyrir hönd fjölskyldunnar biðjum við um að friðhelgi hans og sorg verði virt. Við vottum innilega samúð okkar allra í FC Bayern," segir í tilkynningu þýska félagsins.
Meistaradeildin í dag - Man Utd í Como og Arsenal mætir Olise-lausum Bæjurum
TENGT EFNI

Meistaradeildin í dag - Man Utd í Como og Arsenal mætir Olise-lausum Bæjurum

Jamal Musiala verður einnig fjarverandi en hann er meiddur á læri. Líklegt er að Lennart Karl komi inn í byrjunarliðið. Hinsvegar er búist við því að markvörðurinn reynslumikli Manuel Neuer sé tilbúinn í slaginn og verði í byrjunarliðinu.

Meistaradeildin

#LiðLmunStig
1PSG3+99
2Liverpool3+59
3Stuttgart3+57
4Aston Villa2+76
5Barcelona3+56
6Man City3+46
7Sporting2+46
8Arsenal2+46
9Real Madrid2+26
10Betis2+26
11Dortmund3+16
12Bayern2+54
13Roma3+34
14Shakhtar D2+24
15Atletico Madrid3+14
16PSV304
17Como2+23
18Man Utd2+23
19Villarreal303
20Club Brugge203
21Lens2-13
22Napoli3-23
23RB Leipzig2-23
24Feyenoord2-33
25Sabah FK3-33
26Bodö/Glimt3-53
27AEK3-53
28Fenerbahce3-62
29Viking FK2-21
30Slavia Prag3-31
31Inter2-20
32LASK Linz2-40
33Porto3-40
34Lille2-40
35Galatasaray2-50
36Slovan3-120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.