Fotbolti.net
21.10.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Ten Hag finnst leiðinlegt að sjá Garnacho í brasi

Alejandro Garnacho.

Alejandro Garnacho.

Canon

Mynd: EPA

Erik ten Hag, fyrrum stjóri Manchester United, segist hafa reynt að fá Alejandro Garnacho til Bayer Leverkusen þegar hann var stjóri þar um skamma tíma.

Garnacho kom upp úr akademíunni og í aðallið United undir stjórn Ten Hag. Miklar væntingar voru gerðar til hans en ferill argentínska leikmannsins hefur ekki þróast að óskum. Hann stóð ekki undir væntingum hjá Chelsea á síðasta tímabili og er nú á láni hjá Aston Villa þar sem hann fær ekki mikinn spiltíma.

„Það er leiðinlegt að sjá hann vera í brasi núna. Ég reyndi að fá hann til Leverkusen en hann vildi vera áfram á Englandi, sem ég skil," segir Te Hag í viðtali við Athletic.
„Hann er karakter, þú þarft að hafa stjórn á honum en ég átti sterkt samband við hann. Þetta snýst líka um hann sjálfan auðvitað en hann þarf að vera með þjálfara sem gefur honum traust og væntumþykju. Hann þarf klárlega á væntumþykju að halda."

„Hann er magnaður leikmaður, hann getur hlaupið allan tímann fram og til baka af mikilli ákefð. Stundum er hann ekki með hugarfarið við varnarleikinn svo það þarf að passa upp á að hann sé með einbeitinguna. Hann getur sinnt varnarleiknum og fram á við getur hann gert frábæra hluti. Stundum er hann aðeins of eigingjarn."

Síðan hann kom til Villa hefur Garnacho aðeins spilað fjóra leiki, alla af bekknum, og eru það samtals 42 mínútur. Hann var ekki í leikdagshópnum í 2-1 sigrinum gegn Newcastle.
Garnacho kom upp úr akademíu Manchester United.

Garnacho kom upp úr akademíu Manchester United.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.