Fotbolti.net
21.10.26 - 12:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Víkingar spila í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari

Óskar Borgþórsson í góðgerðatreyjunni. Á treyjunni er liðsmynd frá árinu 1921.

Óskar Borgþórsson í góðgerðatreyjunni. Á treyjunni er liðsmynd frá árinu 1921.

Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Á laugardaginn munu Víkingar spila síðasta leik tímabilsins í góðgerðartreyju sem hönnuð var af 66°Norður og framleidd af Macron. Góðgerðartreyjan er afrakstur samstarfs á milli Víkings og 66°Norður sem hófst í byrjun árs og nær nú hápunkti þessa viku þegar treyjan fer í sölu.

Allur ágóði af sölu treyjunni mun renna til Ingvars Jónssonar og fjölskyldu hans.

Leikur Víkings og Fram hefst klukkan 16:15 á Víkingsvelli og eftir leik munu Víkingar lyfta Íslandsmeistaraskildinum.
Tilkynning Víkings og 66°Norður
„Eftir vel heppnaða góðgerðartreyju árið 2023 höfum við viljað flýta okkur hægt hvað varðar að leggja af stað í annað slíkt verkefni. Við höfum alltaf hugsað stórt í þessum efnum og samstarfsaðilarnir gerast ekki stærri í okkar huga á Íslandi, og þó víðar væri leitað, heldur en 66°Norður. 66°Norður er hönnunarmerki á heimsvísu og því mikil viðurkenning fyrir Víking að geta tengt sig á þennan hátt við fyrirtækið,” segir Halldór Smári Sigurðsson, leikjahæsti leikmaður Víkings og meðhönnuður treyjunnar.

Treyjan er frásögn af fyrsta Íslandsmeistaraliði Víkings og jafnframt fyrstu keppnisferð félagsins árið 1921 í undirbúningi fyrir Íslandsmótið það ár. Liðið sigldi til Vestfjarða og keppti þar æfingaleiki við Ísfirðinga. Það var um þessar mundir og á sömu slóðum sem hugmyndin fæddist að því sem átti síðar eftir að verða 66°Norður. Liturinn á treyjunni er innblásinn af Sepia-ljósmyndun sem var mikið notuð á þeim tíma sem myndin er tekin. Appelsínugulur hefur fylgt 66°Norður frá upphafi sem litur á fyrstu flík fyrirtækisins, sjóstakknum, en liturinn gegndi, og gegnir enn, því hlutverki að gera þá sýnilegri sem falla útbyrðis á sjó.

„Hjá 66°Norður þarf hver flík að hafa skýran tilgang, hvort sem hann felst í tæknilegum eiginleikum, vatnsheldni eða hugmyndafræði. Þá eru sögur sem við viljum segja jafnframt stór hluti af því sem við gerum hjá 66°Norður. Í þessu verkefni var kafað í sögu Víkings og leitað leiða til að tengja hana við arfleið og sjónræna nálgun 66°Norður. Markmiðið var að skapa flík sem hefði ekki aðeins skýran tilgang, heldur segði einnig sögu og endurspeglaði tengsl fortíðar og nútíðar. Til þess að útkoman yrði sem best fórum við í höfuðstöðvar Macron í Bologna á Ítalíu en grafíkin og ljósmyndin sem við vildum nota á treyjunni var tæknilega flókin í útfærslu og mikilvægt að tryggja að útkoman yrði rétt,” segir Bergur Guðnason, stjórnandi samstarfa hjá 66°Norður.

Eins og áður er takmarkað magn af treyjum til sölu og mun allur ágóði af sölunni renna óskiptur til Ingvars Jónssonar og fjölskyldu hans. Eins og mörgum er kunnugt er Ingvar markvörður Víkings og greindist hann með krabbamein fyrr á árinu sem hann háir nú baráttu við.

Vefsala hefst á kl. 23:00 fimmtudagskvöldið 22. október nk. Daginn eftir, föstudaginn 23. október,  verður blásið til veislu í verslun 66°Norður í Faxafeni 17 kl. 17:00 þar sem treyjan verður til sölu, en þó í enn takmarkaðra magni en í vefsölu. Að þessu tilefni verður einnig 20% í versluninni á öðrum vörum 66°Norður.

Lykilhlutverk í hönnun treyjunnar leikur liðsmyndin frá 1921 og á henni eru í aftari röð frá vinstri: Helgi Eiríksson, Gunnar Bjarnason, Sverrir Forberg, Halldór Halldórsson, Óskar Norðmann, Sigurður Waage, Axel Andrésson (einn af stofnendum Víkings) og Þórður Albertsson. í fremri röð frá vinstri eru: Indriði Waage, Páll Andrésson, Haraldur Aspelund, Ágúst Jónsson og Einar Baldvin Guðmundsson.

Margir hafa komið að þessu verkefni, öll hafa gefið vel af sér og þökkum við þeim öllum kærlega fyrir þeirra framlag.

Hönnun treyjunnar: Bergur Guðnason fyrir hönd 66°Norður
Meðhönnuður treyjunnar: Halldór Smári Sigurðsson
Ljósmyndari: Sigríður Margrét Ágústsdóttir
Upptaka og klipping: Björn Steinbekk
Leikari: Steini Sleggja
Bátur: Rafnar
Módel: Óskar Borgþórsson og Bergdís Sveinsdóttir

Síðast en ekki síst viljum við þakka styrktaraðilum Víkings sem allir gáfu eftir pláss sitt á
treyjunni til styrktar málefninu.


Bergdís Sveinsdóttir í góðgerðatreyjunni.

Bergdís Sveinsdóttir í góðgerðatreyjunni.

Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Víkingar spila í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari
Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Víkingar spila í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari
Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Víkingar spila í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari
Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Víkingar spila í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari
Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Víkingar spila í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari
Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Víkingar spila í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari
Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Víkingar spila í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari
Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Víkingar spila í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari
Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Víkingar spila í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari
Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Víkingar spila í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari
Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Víkingar spila í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari
Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Víkingar spila í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari
Canon

Mynd: Góðgerðatreyja Víkings

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.