Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 05. ágúst 2022 10:43
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu mörkin: Frábært mark Ara og Blikar töpuðu gegn Tyrkjunum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar eru í finni stöðu í 3. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir 1-0 sigur gegn Lech Poznan í fyrri viðureign liðanna sem fram fór í Fossvoginum í gær.

Ari Sigurpálsson skoraði sigurmark leiksins í lok fyrri hálfleiks. Vísir hefur birt markið og má sjá það hér að neðan.

Seinni viðureignin fer fram í Póllandi eftir viku.

Hér að neðan má einnig sjá mörkin úr leik Breiðabliks og Istanbúl Basaksehir. Brekkan er ansi brött fyrir Blika fyrir seinni leikinn í Tyrklandi en miði er möguleiki.

Víkingur R. 1 - 0 Lech Poznan
1-0 Ari Sigurpálsson ('45)



Breiðablik 1 - 3 Istanbul Basaksehir
0-1 Danijel Aleksic ('38)
0-2 Deniz Turuc ('52)
1-2 Viktor Karl Einarsson ('63)
1-3 Danijel Aleksic ('92)


Athugasemdir
banner
banner