05.08.26 - 22:18
Helgi Inguson
Jói Kalli: Davíð Viðarsson og Kári Árnason eru væntanlega að ræða þessi mál
Auglýsing

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH og KR skildu jöfn á Kaplakrika í kvöld. KR skapaði sér fullt af færum en heimamenn sýndu mikinn karakter og vörðu mark sitt af mikilli ástríðu. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfara FH, eftir leik.
Lestu um leikinn: FH 1 - 1 KR
„Það er erftitt að eiga við KR-ingana, frábært lið, frábært sóknarlið. Við lentum á köflum, sérstaklega í fyrri hálfleik, í erfiðleikum með þá. Við aðlöguðum okkur aðeins að sóknarleiknum þeirra og hvernig við ætluðum að pressa í seinni hálfleiknum. Það gekk betur að halda aftur af þeim, en alls ekki fullkomlega. KR-ingarnir spiluðu virkilega vel, sköpuðu sér góðar stöður en það var alvöru karakter í okkur öllum," sagði Jóhannes Karl um leikinn.
Kjartan Kári hefur verið töluvert í umræðunni síðustu misseri. Víkingar hafa sýnt honum áhuga eftir að Óskar Borgþórsson ökklabrotnaði á dögunum.
„Kjartan Kári er náttúrulega samningsbundinn okkur en ég skil ósköp vel að Víkingarnir hafi áhuga á honum. Þetta er frábær leikmaður, hörkuduglegur og getur skapað færi og skorað mörk."
Þá er talinn möguleiki á því Erlingur Agnarsson, leikmaður Víkings, myndi fara yfir FH í skiptum, þar sem Kjartan Kári myndi verða leikmaður Víkings.
„Erlingur er náttúrulega samningsbundinn Víkingi og það er erfitt fyrir mig að vera eitthvað að tala um það. Davíð Viðarsson og Kári Árnason eru væntanlega eitthvað að ræða þessi mál. Ef þetta er í gangi þá þurfa þeir að tala saman, ég get því miður ekki svarað þessu," bætti Jóhannes við.
Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum fyrir ofan