05.08.26 - 22:51
Helgi Inguson
Kjartan Kári fyrir fréttir kvöldsins: Ég er leikmaður FH
Auglýsing

FH hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net samþykkt kauptilboð frá Víkingi í Kjartan Kára

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH tók á móti KR í 17. umferð Bestu deildarinnar á Kaplakrika í kvöld. Leikar enduðu 1-1 og Fótbolti.net náði tali af Kjartani Kára Halldórssyni, markaskorara FH, eftir leik.
Lestu um leikinn: FH 1 - 1 KR
„Þetta var mikið hlaup. Við náðumst að verjast þeim vel. Ég sá ekki markið þeirra almennilega, þetta var eitthvað klafs inn í teignum og bolttinn dettur fyrir Luke á fjær sem skorar. Við fengum færi þegar við vorum rólegir á boltanum og þá voru þeir helvíti opnir. Þetta var bara skemmtilegur fótboltaleikur," sagði Kjartan Kári um leikinn.
Kjartan Kári var sterklega orðaður við Víking fyrir leikinn og Fótbolti.net greindi frá því í kvöld að FH hefði samþykkt kauptilboð frá Víkingi í Kjartan Kára. Kjartan var að sjálfsögðu spurður út í áhuga Víkings eftir leik en það var áður en tíðindin bárust:
Var þetta þinn síðasti leikur fyrir FH?
„Nei ekki eins og staðan er, ég er leikmaður FH. Ekkert sem ég veit."
Víkingur hefur sýnt þér áhuga, hvernig líst þér á verkefni þeirra?
„Það er alltaf gott að fá áhuga frá stórum liðum og öðrum liðum en eins og ég segi þá er ég bara leikmaður FH."
Þú hefur talað um að þig langi út og Davíð Viðarsson sagðist vona að þú myndir klára tímabilið með FH og svo yrðir þú mögulega seldur út. Hvað vilt þú?
„Ef ég á að vera hreinskilinn við þig, þá er ég ekki búinn að hugsa það. Þetta kom í gær og ég er bara búinn að einbeita mér að leiknum í kvöld. Ég fer bara sáttur heim á koddann með eitt mark," sagði Kjartan að lokum.