05.08.26 - 22:10
Gylfi Már Þórðarson
Sindri Snær: Ég var bara að hugsa um hvernig ég ætti að fagna
Auglýsing

Sindri Snær skoraði í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sindri Snær skoraði í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflvíkingar tóku á móti KA á HS Orku vellinum í 17. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Heimamenn höfðu tögl og hagldir lungan af leiknum og fögnuðu öruggum 3-0 sigri. Sindri Snær Magnússon átti frábæran leik, var áberandi allan tímann og kórónaði frammistöðu sína með glæsilegu marki.
Lestu um leikinn: Keflavík 3 - 0 KA
"Þetta voru ógeðslega mikilvæg þrjú stig og langþráður sigur. Það var langt á milli leikja, við töpuðum síðasta leik og geðveikt að ná að koma með góðan sigur eftir verslunarmannahelgina.
Það er augljóst hvað við þurfum að gera til að byggja á þessum sigri. Við þurfum að halda áfram að spila vel, við þurfum að halda áfram að stækka góðu kaflana, við vorum smá stirðir í byrjun. Þetta snýst um að halda áfram að tengja góða frammistöðu allan leikinn, við áttum góðar 80 mínútur í dag en maður vill alltaf 90. "
Sindri Snær skoraði fyrsta mark leiksins og var það af dýrari gerðinni.
"Alpha á skot í varnarmann og hann dettur fyrir mig ég fékk að lúðra honum upp í fjærhornið og það er alltaf gaman að sjá hann syngja. Þetta var skemmtilegt, ég fann það strax að boltinn myndi enda uppi í horninu. Þetta var aldrei í vafa ég var bara að hugsa um hvernig ég ætti að fagna þegar boltinn var í loftinu."
Allt viðtalið við Sindra er í spilaranum hér að ofan