05.08.26 - 11:03
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu vítakeppnina þar sem allt fór í vaskinn hjá Breiðabliki

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik tapaði í gær fyrir Aktobe í Kasakstan í forkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn endaði í vítakeppni þar sem allt gekk á afturfótunum hjá Breiðabliki.
Breiðabliki gekk hörmulega í vítakeppninni, klúðraði öllum fjórum spyrnum sínum og Aktobe vann vítakeppnina 2-0.
Arfaslök spyrna Öglu Maríu Albertsdóttur var varin, einnig var varið frá Katelyn Duong og þær Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Líf Joostdóttir van Bemmel þrumuðu báðar yfir. Vítakeppnina má sjá hér að neðan.
Breiðablik á því ekki lengur möguleika á því að fara í 3. umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni og mætir á föstudag Dinamo Minsk í leik um sæti í Evrópubikarnum.

TENGT EFNI