Fotbolti.net
05.09.26 - 14:57
Brynjar Ingi Erluson

Æsispennandi titilbarátta í Svíþjóð - Stórsigur hjá Söndru

Sandra og Köln unnu annan leikinn í röð

Sandra og Köln unnu annan leikinn í röð

Canon

Mynd: Köln

Kvennaboltinn
Þýska liðið Köln vann annan leik sinn í þýsku deildinni í dag og er Íslendingaliðið nú með sex stig.
Sandra María Jessen kom inn af bekknum hjá Köln sem vann 4-0 sigur á Mainz og er með tvo sigra í röð.

Sædís Rún Heiðarsdóttir var ekki með Köln, en hún hefur misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla.

María Catharina Ólafsdóttir Gros byrjaði hjá Djurgården sem tapaði fyrir Rosengård, 1-0. Djurgården er í 10. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 18 stig.

Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir byrjuðu hjá Kristianstad sem tapaði fyrir Brommapojkarna, 2-0. Kristianstad er í 5. sæti með 25 stig. Nik Chamberlain, fyrrum þjálfari Breiðabliks og Þróttar, er þjálfari Kristianstad.

Hammarby ætlar að veita Häcken harða samkeppni um titilinn í ár, en liðið vann 2-0 sigur á Norrköping og er nú með 44 stig, stigi á eftir Häcken.

Guðrún Arnardóttir byrjaði í vörninni. Ída Marín Hermannsdóttir var á bekknum en kom ekki við sögu á meðan Sigdís Eva Bárðardóttir var ónotuð á varamannabekk Norrköping sem er í næstneðsta sæti með 13 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.